Læknaneminn - 01.01.2017, Blaðsíða 119
Sk
em
m
tie
fn
i
11
8
Nýkomnar úr eftir minnilegri útskriftar
ferð þriðja árs frá SuðausturAsíu þyrsti
okkur í meiri ævintýri. Útþráin var mikil
og við vorum ákveðnar í að fara í skiptinám
ári síðar. Fyrir valinu varð Amsterdam.
Hvers vegna? Ekki hugmynd. Ákvörðunin
var tekin án nokkurrar umhugsunar.
Við höfðum fengið veður af því að
hollenska heilbrigðiskerfið væri gott og að
í Amster dam væri mikið um hjól og
bjór. Við vissum að öðru leyti lítið hvað
biði okkar. Amsterdam stóðst algjörlega
væntingar. Hollendingar eru með
hávöxnustu þjóðum heims og þar að auki
fjallmyndarlegir. Hjólið er aðalferðamátinn
og innan um óteljandi síki og einkennandi byggingarstíl
borgarinnar má finna hugguleg kaffihús, veitingastaði og krár
á hverju strái. Gírahjól eru ofmetin að mati heimamanna enda
vantar alfarið brekkur, hæðir og hóla til að skipta um gír í.
Þökk sé flatneskjunni er því hægt að hjóla allan daginn án þess
að svitna stór kostur!
Samtals voru 10 skiptinemar frá átta löndum í prógramminu.
Við bjuggum á fínu háskólakollegíi í 15 mínútna hjólafjarlægð
frá miðbæ Amsterdam og 25 mínútna hjólafjarlægð frá
sjúkrahúsinu. Öll þjónusta, strætóstopp og lestarstöðvar voru
steinsnar frá. Okkur var sköffuð framleigð fullbúin íbúð og hjól
til afnota. Íbúðirnar voru fínar en það sama mátti hins vegar
ekki segja um sameiginleg rými kollegísins sem litu út fyrir
að hafa lent í stjórnlausu háskólapartýi í amerískri bíómynd.
Við komu fengu allir hollenskt SIM kort, samgöngukort og
smá vasapening. Almenningssamgöngur í borg inni og landinu
öllu eru til fyrirmyndar og 9292 smáforritið er ómissandi vinur
meðan á dvöl stendur.
Academisch Medisch Centrum í Amster dam eða AMC er
með stærstu háskóla sjúkrahúsum í Hollandi. Við fyrstu sýn
líkist það engan veginn sjúkrahúsi eins og við þekkjum það,
fremur verslunarmiðstöð eða sérkennilegu listasafni. Þar má
finna Starbucks kaffihús, matvöruverslun, bókabúð, ísbúð,
hárgreiðslustofu og snyrtivörubúð þar sem boðið er upp á
DjAMSTERDAM
Sumarskipti eftir 4. ár
Olga Sigurðardóttir, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Valgerður Bjarnadóttir, fimmta árs læknanemi 2016-2017
„Hjólið er aðalferðamátinn
og innan um óteljandi síki
og einkennandi byggingarstíl
borgarinnar má finna hugguleg
kaffihús, veitingastaði og krár á
hverju strái.“