Læknaneminn - 01.01.2017, Blaðsíða 23
Ri
trý
nt
ef
ni
2222
Inngangur
Þrátt fyrir að augnvandamál séu almennt ekki
viðfangsefni almennra lækna og stór hluti af
starfi augnlækna fari fram utan veggja spítala er
mikilvægt að þeir þekki, geti greint og í ákveðnum
tilvikum veitt viðeigandi meðferð við rauðu auga.
Í þessari grein verður leitast við að varpa ljósi
á algengustu ástæður, uppvinnslu og meðferð
rauðs auga sem þarfnast ekki tafarlausrar uppvinnslu hjá augnlækni.
Rautt auga er það augnvandamál sem verður hvað oftast á vegi hins
almenna læknis. Yfirleitt gengur vandamálið yfir á nokkrum dögum
án þess að þörf sé á inngripi. Í ákveðnum tilvikum getur rautt auga
hins vegar verið vísbending um brátt ástand þar sem mikilvægt er að
sjúklingur komist undir hendur augnlæknis eins hratt og auðið er.
Helstu almennu einkenni og umkvartanir sjúklinga með rautt auga
eru útferð, roði, verkur, ljósfælni, kláði, sviði og breytingar á sjón.
Við uppvinnslu og greiningu á rauðu auga er mikilvægt að taka ítarlega
sögu samhliða augnskoðun sem tekur þó mið af þörf í hverju tilviki
fyrir sig. Við sögutöku er gagnlegt að spyrja um helstu einkenni
vandamálsins, til dæmis hvort að einkennin séu til staðar á öðru eða
á báðum augum, hversu lengi einkennin hafa staðið yfir auk þess að fá
sögu um undir liggjandi kerfissjúkdóma og fyrri augnaðgerðir. Greining,
meðferð og þörf á inngripum augnlæknis byggir síðan á undirliggjandi
orsök rauðs auga.
Þannig er mikilvægt að almennir læknar geti lagt heildstætt mat
á undir liggjandi orsakir rauðs auga og komið því í réttan farveg. Færa
má rök fyrir því að mikilvægast af öllu fyrir almenna lækna sé að
þekkja þau einkenni rauðs auga sem þarfnast tafarlausrar skoðunar hjá
augnlækni. Í einfölduðu máli mætti segja að ávallt ætti að senda sjúkling
til augnlæknis ef; rautt auga er samhliða vaxandi ógleði og uppköstum
(þrönghornsgláka), þörf er á staðbundinni sterameðferð (til dæmis
lithimnubólga), sjúklingur hefur upplifað sjóntap, mikil graftrarkennd
út ferð er til staðar, sár eða dýpri skaði en einfalt þekjufleiður sést
á horn himnu augans, beinn áverki varð á auga, það er nýleg saga um
skurð aðgerð á auga, sterkur grunur er um herpessýkingu í auga og
endurteknar sýkingar sem hafa illa eða ekki svarað meðferð.
Í þeim tilvikum þar sem ofangreind skilyrði eru ekki til staðar og sjónin
er eðlileg, ljósopin svara áreiti eðlilega, ekki er grunur um aðskotahlut
í auga, engin ljósfælni er til staðar og engin merki eru um ógegnsæi, gröft
eða blæðingu í auganu ættu almennir læknar að hugleiða undirliggjandi
orsök, greiningu og meðferð (mynd 1).
Slímhimnubólga
Slímhimnubólga (e. conjunctivitis) er algengasta orsök rauðs auga og
hefur verið ein algengasta ábendingin fyrir útskrift á sýklalyfjum hjá
almennum læknum víða í hinum vestræna heimi um langt skeið2. Í
sjúkdómnum verður útbreidd bólga og erting í slímhimnunni sem
liggur innan á augnlokum (e. palpebral) og á hvítu (e. bulbar) augnanna.
Slímhimnubólga einkennist af slímhimnuroða (e. pink eye) með
útvíkkun á slímhimnuæðum, fjölgun bólgufrumna og útferð.
Talið er að þrjár til sex milljónir Bandaríkjamanna fái slímhimnubólgu
á ári hverju en oftast er um væg einkenni að ræða sem ganga yfir án
inngripa. Við það að heimfæra þessar tölur á Ísland má gera ráð fyrir að
um það bil 3000 til 6000 einstaklingar fái árlega slímhimnubólgu hér
á landi. Þrjár megin orsakir slímhimnu bólgu eru veiru sýkingar, bakteríu
sýkingar og slímhimnu bólga af völdum undirliggjandi ofnæmis3.
Slímhimnubólga af völdum veira
Algengast er að slímhimnubólgur séu af völdum veirusýkinga, en
þær eru taldar valda yfir helmingi allra tilfella hjá fullorðnum3.
Þessar sýkingar eru oftast af völdum adenóveira sem valda efri
öndunarfæra sýkingum, einkum hjá ungabörnum, skólabörnum og
fólki sem býr eða starfar í nánu samneyti hvert við annað. Adenó
veirur eru margleitur hópur en að minnsta kosti 51 sermisgerð
(e. serotype) adenó veira er þekkt og er þeim skipt í sex undirflokka, frá
A–F4. Sumir þessara flokka valda slímhimnubólgu og eitlastækkunum
framan við eyru (e. preauricular) með hita og hálsbólgu á meðan aðrir
valda eingöngu hornhimnu og slímhimnubólgu. Mörg tilfelli af
vægum slímhimnubólgum þar sem ekki er unnt að sýna fram á sýkil
með ræktun eru talin orsakast af öðrum veirusýkingum sem geta lagst
á slímhimnur augna4,5.
Slímhimnubólgur af völdum veirusýkinga eru oft á tíðum afar smitandi
en ekki er óalgengt að aðrir fjölskyldumeðlimir en sá sem leitar læknis
aðstoðar kvarti einnig undan óþægindum þegar líður á. Algengustu
smitleiðirnar eru með beinni snertingu til dæmis af höndum sýkts
einstaklings eða af hlutum sem veiran hefur komist í snertingu við. Jafn
framt er slímhimnubólga af völdum adenóveira sérstaklega smitandi,
á meðan slímhimnubólgur af völdum annarra veira eru oft á tíðum
ólíklegri til að smitast. Sýkingar af völdum adenóveira eru í gangi allt
árið um kring en oft verður vart tímabundinnar aukningar á tilfellum
Rautt auga
Daníel Alexandersson, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Jóhannes Kári Kristinsson, sérfræðingur í augnlækningum
Yfirlitsgrein um nokkrar algengar orsakir,
greiningu og helstu meðferðarúrræði
fyrir hinn almenna lækni