Læknaneminn - 01.01.2017, Side 53
Ri
trý
nt
ef
ni
5252
Umræða
Lungnavanþroski fyrirbura / glærhimnusjúkdómur
Við um 24 vikna meðgöngu fara að myndast stórar og óþroskaðar
lungnablöðrur (e. saccule) sem gera loftskipti möguleg en það er ekki
fyrr en í kringum 36 vikna meðgöngu sem fullmótaðar lungnablöðrur
(e. alveoli) hafa myndast. Við 24 vikna meðgöngu fara að sjást frumur
sem innihalda lungnablöðruseyti (e. type II alveolar cells) en það
er ekki fyrr en fjórum til fimm vikum síðar sem það kemur fram í
legvatninu1. Við 24 vikna meðgöngu er háræðabeðurinn, sem seinna
umlykur lungnablöðrurnar, ekki enn fullmyndaður. Þessi vanþroski á
lungnablöðrum og háræðum lungna stuðlar að þeim lungnavandamálum
sem fyrirburar þurfa að glíma við.
Helsta hlutverk lungnablöðruseytis er að minnka spennu á innra
yfirborði lungnablaðra og koma þannig í veg fyrir að þær falli saman.
Glærhimnusjúkdómur (e. respiratory distress syndrome, RDS) verður
þegar lungnablöðruseyti er ábótavant hjá nýburanum og ber þá snemma
á öndunarerfiðleikum sem fara vaxandi og ná oftast hámarki við
4872 klst. aldur2. Algengast er að þetta verði hjá fyrirburum og er tíðni
RDS í öfugu hlutfalli við meðgöngulengd barnsins3. Hægt er að minnka
líkur á að barnið fái RDS með því að gefa verðandi móður barkstera
fyrir fæðingu, auk þess sem sjúk dómurinn verður mildari4. Meðferð
eftir fæðingu er að gefa barninu súrefni og þrýsting ofan í lungun til
að halda lungnablöðrunum opnum. Til þess er síþrýstingur yfirleitt
nægilegur en stundum þarf að tengja barnið við öndunarvél og þá er
því gefið lungnablöðruseyti í barka rennuna2. Oftast nægir meðferð með
hefðbundinni öndunar vél en ef lungnasjúkdómurinn er mjög slæmur
getur þurft að grípa til meðferðar með hátíðniöndunarvél.
Loftbrjóst
Einn af fylgikvillum glærhimnusjúkdóms og öndunarvélar meðferðar er
loftbrjóst. Orsakast það af því að þrýstingurinn sem þarf til að þenja út
stíf lungu barnsins veldur áverka sem gerir það að verkum að loft kemst
út á yfirborð lungans sem þá fellur saman. Stundum fer loftið einungis
inn í miðmætið en ekki inn í fleiðruholið og veldur það þá yfirleitt ekki
samfalli á lunganu.
Þegar barn fær loftbrjóst hrakar því yfirleitt nokkuð skyndi lega og við
lungnahlustun eru öndunarhljóð minnkuð þeim megin. Hægt er að
greina loftbrjóst hjá nýburum með því að lýsa með sterku rauðu ljósi
í brjóst kassann, eins og gert var í þessu tilfelli, og lýsir þá brjóst hol upp
þeim megin sem loft brjóstið er. Rétt er að stað festa greiningu með
röntgenmynd ef tími vinnst til5. Meðferðin felst í því að setja kera inn
í brjóstholið, tæma þannig út loftið og tengja hann við sog. Yfirleitt er
hægt að fjarlægja kerann eftir tvo til þrjá daga.
Lungnaháþrýstingur
Á fósturskeiði fara loftskipti fram í fylgjunni. Viðnám í lungna
blóðrásinni er þá hátt sem veldur því að mest allt útfall hægri slegils fer
framhjá lungunum í gegnum fósturslagrásina (e. ductus arteriosus) og
súrefnissnautt blóð fer úr hægri gátt yfir í þá vinstri í gegnum sporgatið
(e. foramen ovale). Hið mikla viðnám í lungna slagæðum er vegna lágs
súrefnisþrýstings í blóði og losunar á æða herpandi efnunum endóþelín
og þromboxan. Um leið og barnið fer að anda eftir fæðingu hækkar
súrefnisþrýstingur í blóði sem veldur skyndilegri lækkun á viðnámi
í lungnaslagæðum, aðallega fyrir tilstilli NO og prostasýklíns (PGI2),
og við það eykst blóðflæði um lungun til muna6.
Í sumum tilfellum getur aukið viðnám í lungnaslagæðum verið
viðvarandi eftir fæðingu og ef þrýstingurinn í lungna blóðrásinni fer yfir
þrýstinginn í meginblóðrás líkamans fer hluti útfalls hægri slegils yfir í
meginblóðrásina í gegnum fósturslagrásina, líkt og á fósturskeiði, auk
þess sem súrefnissnautt blóð fer úr hægri gátt yfir í þá vinstri í gegnum
sporgatið. Þannig fer hluti þess blóðs sem átti að fara til lungna fram hjá
þeim sem veldur því að súrefnissnautt blóð fer í umtalsverðum mæli yfir
í meginblóðrás líkamans og veldur því að súrefnismettun í slagæðablóði
barnsins lækkar.
Lausnir TM Software eru notaðar daglega af þúsundum heilbrigðisstarfs-
manna á öllum helstu heilbrigðisstofnunum landsins s.s. sjúkrahúsum,
stofum sérfræðilækna, heilsugæslum, hjúkrunarheimilum auk apóteka.
Erum leiðandi í hugbúnaði fyrir heilbrigðissvið
www.tmsoftware.is | Borgartúni 37, 105 Reykjavík | 545 3000