Læknaneminn - 01.01.2017, Síða 67

Læknaneminn - 01.01.2017, Síða 67
Fr óð lei ku r 66 Reyna skal að greina á milli falskrar og sannrar kraftminnkunar. Fölsk kraftminnkun getur stafað af verkjum. Sjúklingur með subacromial bursitis er oft með verki í öxlinni sem veldur veikleika þegar öxlin er í fráfærslu. Supraspinatus Fráfærsla. Hægt er að prófa supraspinatus vöðvann með því að hafa handlegg í 90° fremri beygju (e. forward flexion) og 30° fráfærslu með þumalfingur sem snúa að gólfi. Sjúklingur reynir svo að lyfta handleggjum upp gegn mótstöðu (mynd 3). Þetta próf er oft kallað empty can test. Infraspinatus Útsnúningur. Til að athuga virkni infraspinatus er handleggur hafður niður með síðu og olnbogi í 90°. Síðan er sjúklingur beðinn um að snúa handlegg út gegn mótstöðu (mynd 4). Teres minor hjálpar einnig til við þessa hreyfingu en þó í minna mæli en infraspinatus. Subscapularis Innsnúningur. Til að prófa virkni subscapularis er notað svokallað lift-off test (mynd 5). Þá setur sjúklingur hendi fyrir aftan bak. Sjúk­ lingur er svo beðinn um að lyfta hendi frá baki í afturábak stefnu. Ef sjúklingur getur ekki gert þessa hreyfingu vaknar grunur um áverka á subscapularis vöðvann. Ef sjúklingur kemst ekki með hendi fyrir aftan bak má gera þetta með því að sjúklingur setur hendi á kvið og lyftir olnboga frá líkama meðan hendi hvílir áfram á kvið. Það próf heitir Belly press. Axlarklemma Axlarklemma er algengasta ástæða verkja í öxlum. Axlarklemma verður þegar mjúkvefir klemm ast á milli axlarhyrnu og upphandleggjar og orsakar verki við hreyfingu um axlarliðinn. Dæmi um áhættuþætti fyrir axlarklemmu eru endurteknar hreyfingar í axlarlið í meira en tvo tíma á dag og einnig vinna fyrir ofan axlarhæð í meira en einn tíma á dag. Algengasta kvörtun sjúklinga er næturverkur. Neer’s axlarklemmu próf Prófið er jákvætt þegar rotator cuff sinar klemmast undir coracoacromial boganum. Hand leggur er settur í fulla ranghverfingu (e. pronation) og síðan beygt um öxl. Verkur við þetta próf gefur til kynna subacromial impingement. Neer´s próf er gert með því að sprauta staðdeyfingu undir axlarhyrnuna og endurtaka svo prófið. Ef sárs aukinn hverfur telst það jákvætt og merki um axlarklemmu. Hawkins próf Þetta próf er einnig notað til að meta axlar­ klemmu. Handlegg sjúklings er lyft upp í 90° beygju um öxl og 90° beygju um olnboga meðan honum er einnig þröng vað í innsnúning (mynd 6). Verkur við þetta próf gefur til kynna subacromial impinge ment eða rotator cuff tendinitis. Hægt er að deyfa með staðdeyfingu í subacromial bursu og gera prófið aftur eftir það. Ef sjúklingur lýsir minnkuðum verkjum styður það við greininguna. Rannsóknir sýna að Hawkins próf er næmara próf fyrir subacromial bursitis heldur en Neer´s. Acromioclavicular liður Slit í acromioclavicular liðnum er algengasta ástæða verkja í liðnum sjálfum. Sjúklingur lýsir staðbundnum verk yfir liðnum sem er oftast aumur við þreifingu. Ef grunur er um slit er tekin röntgenmynd til staðfestingar auk þess sem hægt er að sprauta staðdeyfilyfi í liðinn. Crossarm test Þetta próf er notað til að prófa acromioclavicular liðinn. Algengt er að verkjum í þessum lið sé ruglað saman við axlarklemmuverki. Það sem prófið gerir er að einangra liðinn til að hægt sé að glöggva sig betur á hvaðan verkir eru að koma. Handleggur er beygður um öxl í 90° frambeygju. Handleggur er svo aðfærður þvert fyrir líkamann en við það ýtist axlarhyrnan inn í fjarhluta viðbeins. Verkir við þetta próf gefa til kynna sjúklegt ástand í liðnum. Mikilvægt er að muna að þreifa einnig yfir liðinn eins og komið var inn á í kafla um þreifingu. Óstöðug öxl Af öllum stórum liðum í líkamanum er algengast að axlarliðurinn fari úr lið. Þegar öxlin fer úr lið á ungu fólki verða skemmdir sem gera það að verkum að stór hluti mun fara aftur úr lið innan árs frá atburði. Algengast er að öxlin fari úr lið að framanverðu, eða í allt að 95% tilvika. Óstöðugleiki er oft flokkaður í liðhlaup með eða án áverka. Reynt er að greina á milli fremri, aftari og neðri óstöðugleika. Vegna þess að öxlin er undir venjulegum kringumstæðum óstöðugasti liður líkamans getur hún hreyfst töluvert og því er mikilvægt Mynd 5. Lift-off test. Hönd færð frá baki og sjúklingur beðinn um að halda hendinni frá án þess að hún komi við bakið. Prófar styrk subscapularis. Mynd 6. Hawkins axlarklemmupróf.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.