Læknaneminn - 01.01.2017, Page 82
Fr
óð
lei
ku
r
81
AUGNLÆKNINGAR
Löng hefð er fyrir þjálfun og störfum deildarlækna
við augndeild Landspítala. Stefnt er á að ljúka endur
skipulagningu í samræmi við nýja reglugerð um sérnám
í læknisfræði fyrir ársbyrjun 2018.
Fjöldi ára: Óákveðið.
Fjöldi staða: 4 í heild.
Alþjóðleg viðurkenning: Undirbúningur fyrir vottun
og viðurkenningu námsins stendur yfir en óákveðið
hvaðan.
Skipulögð kennsla: Reynt er að hafa tvo tíma aðra
hverja viku í kennslu. Stuðst hefur verið við náms
framvindu bók evrópsku augnlæknasamtakanna og
náms markmið þeirra. Einnig er til staðar svokallað
„dry lab“ þar sem hægt er að æfa vinnubrögð undir
skurðsmásjá svo sem saumaskap og inndælingu lyfja
í gerviaugu.
Mat: Fylgst er með daglegum störfum deildarlækna,
þekkingu þeirra og færni. Einnig er boðið upp á að
taka svokallað „intraining“ próf á vegum bandarísku
augnlæknasamtakanna en það er ekki skylda.
Rannsóknarvinna: Valfrjálst en tækifæri til rannsókna
eru fjölmörg.
MYNDGREINING
Óákveðið hvort formlegt sérnám verði sett á laggirnar
á næstunni.
Fjöldi ára: 2 ár í undirbúning fyrir áframhaldandi sér
nám erlendis.
Fjöldi staða: Allt að 56 í heild.
Alþjóðleg viðurkenning: Engin formleg en tíminn
fæst að hluta eða í heild metinn inn í sérnám
á Norðurlöndum.
Skipulögð kennsla: Einn eftirmiðdagur í viku auk
deildarfunda með fræðsluerindum að jafnaði vikulega.
Mat: Fylgst er með framgangi deildarlækna og allur
úrlestur þeirra yfirfarinn af sérfræðilækni sem gefur
möguleika á góðri og markvissri endurgjöf.
Rannsóknarvinna: Ekki skylda en hvatt er til
gæðavinnu og rannsókna, bæði innan röntgendeildar
og í samvinnu við aðrar deildir.
Frá og með hausti 2017 verður boðið upp á SKBL
nám sem er sameiginlegt bráðalækningum, bráða
lyflækningum og svæfinga og gjörgæslulækningum.
Sérnáms læknir velur sér eina af þessum þremur
greinum sem aðalgrein en „róterar“ á allar þrjár.
Fjöldi staða: Að meðaltali 12 á ári, þar af 4 í bráða
lyflækningum, 4 í svæfinga og gjörgæslu lækningum
og 4 í bráðalækningum.
Alþjóðleg viðurkenning: SKBL námið samræmist
breska ACCS (Acute Care Common Stem) náminu
og er viðurkennt af samtökum breskra bráðalækna,
lyflækna og svæfinga og gjörgæslulækna.
SAMÞÆTT KJARNANÁM Í BRÁÐAGREINUM
LÆKNINGA (SKBL)
Fyrirkomulag: Þrjú ár í heild, þar af 6 mánuðir
í bráða lækningum, 6 mánuðir í bráðalyflækningum og
12 mánuðir í svæfinga og gjörgæslulækningum, auk
12 mánaða á sviði aðalgreinar. Sérnámslæknir fylgir því
kennsluprógrammi sem hann velur sér í upphafi og fer
yfir sérstakt námsefni á netinu sem hæfir hans sérgrein.
Notuð er viðeigandi rafræn námsframvindubók og
farið á námskeið og próf samkvæmt því.