Læknaneminn - 01.01.2017, Page 117
Sk
em
m
tie
fn
i
11
6
Í lok febrúar 2016 fór ég til Boston að
vinna BS rannsóknarverkefnið mitt í
læknisfræði á Brigham and Women’s
Hospital í samvinnu við Harvard
Medical School. Frá því ég byrjaði
í náminu hefur mig alltaf langað að
vinna verkefni í Bandaríkjunum,
bæði til að fá tækifæri til að upplifa
nýja hluti og mynda tengsl erlendis.
Ég sendi fyrirspurn um verkefni á þá
íslensku lækna sem ég vissi að væru
úti eða höfðu lært þar. Ég og Jóhanna Brynjarsdóttir, vinkona
mín og bekkjarsystir, vorum svo heppnar að fá báðar verkefni
í Boston hún á Boston Children’s Hospital og ég hjá Jóni
Ívari Einarssyni sem er yfir Minimally Invasive Gynecologic
Surgery Division (MIGS) á Brigham.
Brigham and Women’s Hospital er stærsti spítalinn
á Longwood Medical Area í Boston og annar stærsti
kennsluspítali Harvard Medical School. Það var gaman að fá
tækifæri til að vinna á svo stórum og flottum spítala. MIGS
deildin opnaði 2006 og hefur síðan unnið markvisst að betri
aðferðum með kviðsjártækni. Á þeim tíma sem ég var úti voru
tvær aðrar stelpur að vinna í rannsóknum á deildinni og þær
voru mér ómetanlegur félagsskapur. Deildin er innan fæðinga
og kvensjúkdómasviðs svo við mættum á hádegisfyrirlestra
tvisvar í viku, annars vegar um fæðingalækningar og hins
vegar um kvensjúkdómalækningar. Það var áhugavert að
sjá hversu vel deildarlæknarnir voru undirbúnir og hversu
flottir fyrirlestrarnir voru. Hádegishléin voru oftast það
skemmtilegasta við daginn en bæði á Brigham og Boston
Children’s, sem eru á sama svæði, eru ótrúlega flottar kaffiteríur.
Ég verð að viðurkenna að maturinn var meira spennandi en
hér heima á Landspítalanum. Ég og Jóhanna hittumst svo oft
í hádegismat og sátum úti í sólinni þegar veður var gott.
Ég bjó í húsi á háskólasvæði Tufts University hjá frænku
minni sem er þar í skóla. Þannig fékk ég ekta bandaríska
háskólastemningu beint í æð. Við bjuggum níu saman
í húsinu, elduðum saman á kvöldin og systra og bræðralögin
héldu partý um helgar. Húsið er í Somerville sem er lítill og
notalegur bær skammt fyrir utan Boston. Það var samt í um
STARFSREYNSLA
OG STEMNING
BEINT Í ÆÐ
BS verkefni í Boston
Helga Þórunn Óttarsdóttir
fjórða árs læknanemi 2016-2017
„Ég bjó í húsi á háskólasvæði Tufts
University hjá frænku minni sem
er þar í skóla. Þannig fékk ég ekta
bandaríska háskólastemningu beint
í æð. Við bjuggum níu saman í
húsinu, elduðum saman á kvöldin
og systra- og bræðralögin héldu
partý um helgar.“