Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 154
Ra
nn
só
kn
ar
ve
rk
ef
ni
3
. á
rs
ne
m
a 2
01
6
15
3
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er lýðgrunduð
ferilrannsókn. Þátttakendur voru allir þeir sem
greindir voru með NHL á árunum 19812013
(n=37.811) í Svíþjóð. Gögnin voru fengin frá
krabbameins skrá Svíþjóðar og voru upp lýsingar um
aldur, kyn, greiningar dagsetningu og tegund NHL
skráðar. HL er hlutfall á mælanlegri lifun annars vegar
og lifun inni sem við búist er við hjá sambærilegu þýði.
Með því að bera saman við sænskar töflur um lífslíkur
miðað við aldur, kyn og fæðingarár þá var HL reiknuð
til 1, 5, og 10 ára hjá fimm aldurshópum (1849,
5059, 6069, 7079 og ≥80 ára) á árunum 1981
1992 einungis fyrir NHL í heild), 19932003 og
20042013 með 95% öryggisbili (ÖB). Auka áhættu
hlutfall (e. excess hazard ratio; EHR) fyrrnefndra hópa
var fengið með Poisson aðhvarfsgreiningar líkani.
Tímaskalinn sem notaður var var tími frá greiningu.
Niðurstöður: Hóparnir sem skoðaðir voru, var NHL
í heild sinni (n=37.811), stórfrumu B eitilfrumu
krabbamein (e. diffuse large B-cell lymphoma;
DLBCL)(n=11.779), hnútótt eitilfrumu krabbamein
(e. follicular lymphoma)(n=5.692) og Tfrumu
eitilfrumu krabbamein (n=6.821). Fimm ára HL
hjá öllum aldurs hópum NHL sjúklinga fór úr því
að vera 0,49 (ÖB: 0,470,50) á tímabili 1 og í 0,65
(ÖB: 0,640,67) á tímabili 3 (p=0). Fimm ára HL
á sömu tímabilum fyrir fyrsta aldurflokkinn var
0,70 (ÖB: 0,670,72) og 0,85 (ÖB: 0,830,87)
(p=0) en 0,29 (ÖB: 0,250,33) og 0,43 (ÖB: 0,40
0,47) (p=0) fyrir síðasta aldursflokkin. Fimm ára
HL DLBCL fór úr 0,54 (ÖB: 0,520,56) á tímabili
2 í 0,62 (0,600,64) á tímabili 3 (p=0). Fimm ára
HL hnútótts eitilfrumukrabbameins fór úr 0,71
(ÖB: 0,690,74) á tímabili 2 í 0,85 (ÖB: 0,83
0,88) á tímabili 3 (p=0). EHR hjá síðasta aldurs
hópunum í Tfrumu eitilfrumukrabbamein með
20042013 sem viðmiðunartímabil var 1,17
(ÖB: 0,991,40, p=0,09).
Ályktanir: Ljóst er að HL hefur batnað hjá flestum
NHL sjúklingum frá árinu 1981. Hún hefur þó
ekki orðið betri hjá sumum aldurshópum Tfrumu
lymphoma. Það sem skýrir það eru hugsanlega
ný krabbameinslyf tekin í notkun á upphafsárum
aldarinnar fyrir Bfrumu eitilfrumukrabbamein.
Einnig má spyrja sig hvort við séum að greina
sjúkdómana fyrr og séum að veita betri stuðnings
meðferðir og aðhald.
Áhrif meðgöngulengdar
á námsárangur
Elín Þóra Elíasdóttir1, Þóra
Steingrímsdóttir1,2, Inga Dóra Sigfúsdóttir3,
Ingibjörg Eva Þórisdóttir3, Ragnhildur
Hauksdóttir1, Þórður Þórkelsson1,4
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Kvennadeild
Landspítalans, 3Háskólinn í Reykjavík,
4Barnaspítali Hringsins
Inngangur: Fáar rannsóknir hafa skoðað línuleg áhrif
meðgöngulendar á einkunn en þekkt er að fyrirburar
eru í aukinni áhættu á að greinast með ýmsa langvinna
sjúkdóma. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að
fyrirburar, og sérstaklega allra minnstu fyrirburarnir,
fá marktækt lægri einkunnir en samnemendur þeirra
sem fæddir eru eftir fulla meðgöngu. Nýlega hafa
komið fram rannsóknir sem sýna að meðgöngulengd
hefur einnig áhrif á einkunnir fullburða barna.
Mark mið þessarar rannsóknar eru að skoða áhrif
meðgöngu lengdar á einkunn í 4. og 7. bekk.
Einnig verður athugað hvort marktækur munur sé
á einkunnum fyrirbura og fullburða barna, hvort
áhrif meðgöngulengdar séu mismunandi eftir og
kyni og hvort meðgöngulengd hafi áhrif á einkunnir
fullburða barna.
Efniviður og aðferðir: Unnið var með tilbúið
gagnasafn sem safnað var í tengslum við rannsóknina
LIFECOURSE. Þeirra gagna hafði verið aflað frá
Fæðingaskrá Landlæknis, Námsmatsstofnun og
Hagstofunni. Í rannsóknarhópnum voru öll börn
sem fæddust og voru með búsetu í Reykjavík árið
2000. Frá Námsmatsstofnun fengust upplýsingar
um einkunnir á samræmdum prófum í íslensku og
stærðfræði í 4. og 7. bekk.
Niðurstöður: Aukin meðgöngulengd veldur mark
tækri hækkun á einkunn í samræmdum prófum
í stærð fræði bæði í 4. og 7. bekk eftir að leiðrétt
hefur verið fyrir helstu bjögum. Meðgöngulengd
sýndi ekki marktæk áhrif á heildareinkunn í íslensku,
hvorki í 4. né 7. bekk. Ekki fannst marktækur
munur á einkunnum fyrirbura og fullburða barna
nema í ritun í 7. bekk þar sem fullburða börn fengu
31,8% hærri einkunn. Þegar gögnunum var lagskipt
eftir kyni kom í ljós að áhrif meðgöngulengdar
á einkunn voru einungis til staðar hjá strákum þar
sem meðgöngulengd hafði marktæk áhrif á allar
heildareinkunnir bæði í 4. og 7. bekk. Hjá stelpum
voru áhrif meðgöngulengdar á heildareinkunn aldrei
marktæk. Áhrifa meðgöngulengdar gætir einnig
hjá fullburða börnum (fæddum eftir 37 – 42 vikna
meðgöngu) en þar kom fram marktæk hækkun
á einkunn í íslensku og stærðfræði með aukinni
meðgöngulengd bæði í 4. og 7. bekk. Einnig fannst
marktækur munur á einkunnum snemmbura (37
38 vikna meðganga) og full og síðbura (>39 vikna
meðganga) þar sem full og síðburar fengu marktækt
hærri einkunnir.
Ályktanir: Niðurstöður þessarar rannsóknar benda
til þess að meðgöngulengd hafi marktæk línuleg
áhrif á einkunnir í samræmdum prófum. Fyrri
rannsóknir hafa sýnt fram á að fyrirburar fái lægri
einkunnir en fullburða börn en það var ekki raunin
í þessari rannsókn þar sem fjöldi fyrirbura var líklega
ekki nægjanlegur til þess að fá fram marktækan
mun. Nýlegar rannsóknir benda til þess að aukin
meðgöngulengd fullburða barna spái fyrir um betra
gengi í skóla. Niðurstöður þessarar rannsóknar styrkja
þær ályktanir þar sem meðgöngulengd fullburða barna
virðist hafa umtalsverð áhrif á einkunn. Mjög skýr
kynjamunur kom fram í áhrifum meðgöngulengdar
og væri áhugavert að skoða það nánar.
Áhættumat á bráðu
kransæðaheilkenni
Erla Þórisdóttir1, Karl K. Andersen1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands,
2Hjartadeild Landspítala
Inngangur: Sjúklingar með brátt kransæðaheilkenni
eru misleitur hópur með mismunandi áhættu á
endurteknum hjartaáföllum og dauða. GRACE ACS
risk score áhættureiknirinn var hannaður til að spá
fyrir um horfur sjúklinga innan 30 daga, 6 mánuða,
eins árs og þriggja ára. Tilgangur þessarar rannsóknar
var að meta hvort áhættustigun með GRACE skori
komi að gagni við að spá fyrir um dauðsföll og
endurtekin hjartaáföll hjá íslenskum sjúklingum sem
greinast með brátt kransæðaheilkenni.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tók til allra
þeirra sem lögðust inn á Landspítalann með brátt
kransæðaheilkenni frá 1. janúar 2013 til 31. desember
2013. Úr Sögukerfi Landspítala voru sóttar þær
breytur sem notaðar eru til útreikninga á GRACE
skori. GRACE skor og áhættumat fyrir 30 daga
lifun, eins árs lifun og eins árs lifun án hjartaáfalla
var reiknað út fyrir alla þátttakendur. Afdrif sjúklinga
með tilliti til endurtekinna hjartaáfalla og dauða voru
að lokum könnuð. Lífshorfur voru reiknaðar með
aðferð KaplanMeier og framkvæmd voru logrank
próf til að bera saman lifunarkúrfur. Útreiknað
GRACE áhættumat og raunveruleg áhætta þýðisins
voru borin saman og ROC kúrfur teiknaðar til að
meta næmni og sértækni áhættumatsins.
Niðurstöður: Þátttakendur voru 666, 189 konur
og 477 karlar. Meðalaldur þátttakenda var 68,0
±13,1 ár. 212 (31,2%) sjúklingar lögðust inn vegna
hvikular hjartaangar, 293 (44,0%) vegna NSTEMI
og 161 (24,8%) vegna STEMI. 30 daga lifun
þýðisins var 94,7%, eins árs lifun 89,8% og eins
árs lifun án hjartaáfalla 78,5%. Marktækur munur
var á lifun kynja (p= 9,1*104) og lifun sykursjúkra
(p=3,7*104) til eins árs og marktækurmunur á
lifun án hjartaáfalls innan eins árs meðal sömu hópa
(p=3*102 og p=1,7*104). Þegar útreiknað GRACE
áhættumat var borið saman við hlutfall raunverulegra
dauðsfalla og endurtekina hjartaáfalla lentu
raunverulegu gildin í flestum tilfellum innan marka.
Þegar næmni og sértækni GRACE áhættureiknisins
var athuguð var AUC=0.9156 (0.87850.9528) fyrir
30 daga lifunarmat, AUC=0,8925 (0.86130.9236)
fyrir eins árs lifunarmat og AUC=0,7083 (0.6553
0.7612) fyrir eins árs lifunarmat án hjartaáfalla.
Ályktanir: Niðurstöður gefa til kynna að áhættumat
GRACE skorsins sé almennt gott á íslensku þýði. Því
má áætla að GRACE áhættureiknirinn myndi koma
að gagni við að spá fyrir um afdrif íslenskra sjúklinga
sem greinast með brátt kransæðaheilkenni.
Krampar á Bráðamóttöku
Barnaspítala Hringsins
Eydís Ósk Jónasdóttir1, Ólafur
Thorarensen2, Brynja Kristín Þórarinsdóttir2,
Sigurður Einar Marelsson2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Barnaspítali
Hringsins
Inngangur: Krampar eru tiltölulega algengt vanda
mál í börnum og árlega leitar talsverður fjöldi barna
á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins vegna
þeirra. Krampar geta verið af ýmsum orsökum en
í börnum eru hitakrampar algengasta orsök krampa.
Þar af eru einfaldir hitakrampar í miklum meirihluta.
Flogaveiki kemur einnig oft fram á barnsaldri og eins
geta börn fengið staka krampa. Mikilvægt er að fá
gott yfirlit yfir þennan sjúklingahóp og var markmið
rannsóknarinnar að skoða nánar komur þessara
barna og greiningar þeirra. Einnig var markmið
rannsóknarinnar að sjá hver fjöldi barna sem er að
greinast ár hvert með flogaveiki væri.
Efniviður og aðferðir: Tilskilin leyfi fengust hjá
framkvæmdastjóra lækninga (tilv.16, LSH 11015)
og Siðanefnd Landspítala (leyfi 45/2015). Rann
sóknin náði til þeirra sjúklinga sem leituðu á Bráða
móttöku Barnaspítala Hringsins árin 20132014
vegna krampa. Tölvudeild Landspítalans safnaði
saman kennitölum þeirra sjúklinga og var svo
farið inn í sjúkraskrár þessara sjúklinga og nánari
upplýsingum um þá safnað. Notast var við forritið
R studio til að taka saman tölur og teikna gröf.
Niðurstöður: Á þessum árum komu samtals 276
börn á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins
vegna krampa. Þar af komu 108 börn (39,1%)
vegna flogaveiki, 146 (52,9%) vegna hitakrampa
og 22 (8%) vegna annars konar krampa. Heildar
komufjöldi vegna krampa var 673 eða 2,5% af
heildarfjölda koma á Bráðamóttöku Barnaspítala
Hringsins á tímabilinu. Af þeim 146 börnum sem
komu vegna hitakrampa fengu 110 (75,3%) þeirra
sinn fyrsta hitakrampa á tímabilinu, þar af 57
drengir og 53 stúlkur. 63 börn (43,2%) af þessum
146 fengu endurtekningu á hitakrampa á tímabilinu
og 9 (6,2%) fengu flókinn hitakrampa. Af þeim
108 börnum sem voru flogaveik höfðu 51 (47,2%)
verið greind fyrir komu á bráðamóttökuna. 29 börn
(26,9%) greindust svo með flogaveiki árið 2013. Þar
af voru 19 drengir og 10 stúlkur. 28 börn (25,9%)
greindust með flogaveiki árið 2014, þar af 13 drengir
og 15 stúlkur. Tíðasti aldurinn sem börnin greindust
á var eins árs. Algengustu greiningarnar hjá þeim sem