Það bezta - 15.01.1948, Qupperneq 10
Vandamál, sem þarfnast a'ðgátar.
C/- heimascetan ástfancjin?
Stytt úr Better Homes &' Gardens.
— Gladys Denny Schult/. —
Tj’f til vill eigið þér dóttur milli
fermingar o,g tvítugs. Þá
eru 511 líkindi til þess, að hún
sé ástfangin — eða haldi sig vera
það, sem kemur reyndar í sama
stað niður. Hvernig geta foreldr-
ar, sem unna börnum sínum alls
góðs, hjálpað þeim til að forðast
þau misstig, er varpa kynnu
skugga á alla framtíð þeirra?
Vinkona mín ein taldi sig
hafa til fullnustu innt af hendi
allar sínar skyldur við unga
dóttur sína. Hún hafði ævinlega
svarað öllum spurningum ungu
stúlkunnar, en eigi að síður
hafði hún á tilfinningunni, að
til eru hlutir, sem rnenn kinoka
sér við að tala um. Dag nokkurn
færði pósturinn henni bréf frá
dótturinni, sem nú dvaldi í fjar-
iægð.
„Mamma, þú verður að vera
svo væn að segja mér allt af létta,
hvernig þessu er varið með kyn-
ferðismálin. Astaratlot og svo-
leiðis, meina ég. Hve langt, get-
ur maður gengið með góðri
samvizku og án áhættu? Vertu
ekki hrædd, — ég hef ekki gert
neina skyssu. En ég er ráðalaus
og örvæntingarfull, og margar
vinkonur mínar eru engu betur
á vegi staddar."
Kossa og ástaratlot — nei, það
hafði móðirin aldrei borið í mál.
En henni var fullkomlega ljóst,
að umgengnivenjur unga fólks-
ins voru frjálslegri, og samskipti
þess miklu nánari en fyrr á árum.
Þegar hún fór að hugleiða þetta,
rann það einn'ig upp fyrir henní,
að hún hafði aldrei rætt við dótt-
ur sína, hvað væri rétt og hvað