Það bezta - 15.01.1948, Síða 12

Það bezta - 15.01.1948, Síða 12
10 ÞAÐ BEZTA Janúar sem getur varað ævina á enda; það er forsenda þess, að maður stofnar heimili og eignast börn, sem við elskum og höldum verndarhendi yfir, á meðan við lifum. Reynsla alls mannkynsins hefur kennt okkur, að innilegt samlíf karls og konu verður að byggjast á gagnkvæmri *ást og virðingu, ef það á ekki að leiða til ófarnaðar fyrir báða aðila. Flestir karlmenn hafa fyrir- litningu á þeim stúlkum, sem eru eftirlátar við þá af öðrum hvötum. Það er ein ástæðan ti' þess, að við megum kenna -í brjósti um þær ungu stúlkur, sem hafa ekki nægilegt taum- hald á sér. Það er ekki gaman að hljóta fyrirlitningu manns- ins, sem maður hefur lagt sig fram um að geðjast:. Það bezta, sem þú getur því gert, María mín, er að nota skyn- semi þína og temja hinar háska- legu tilfinningar, áður en jrær fara að ná valdi yfir þér. Láttu engan kyssa þig eða gera við þig gælur, og vertu ekki ein með karlmanni langt fram á nætur. Hikaðu ekki við að slíta þeim samfundi, sem ætlar að verða þér erfiður. Eina ráðið er, að þú reynir að koma þér til annars fólks, þar sem engin hætta er á ferðum. Það er alveg ástæðu- laust f>xir þig að veigra þér við því eða biðja afsökunar á því. Taktu aldrei þátt í neinu, sem brýtur í bág júna innstu eðlisavísun og heilbrigðu dóm- greind, einungis til að þóknast herranum þínum. Það ert þú, sem átt úrskurðarvaldið í þessu máli. Þegar þú á sínum tíma hittir mann af réttu tegundinni, mann, iem þú vilt bindast ævi- langt, mun hann verða þér þakk- látur fyrir stillingu þína. En samneyti við menn af hínni teg- undinni hefur aðeins áhyggjur o<r leiðindi í för með sér.“ Ö -5 1k Ef sonur yðar eða dóttir bera upp fyrir yður spurningar eða leita ráða við laiisn erfiðra vandamála, jtá hlýðið ineð at- hygli á, hvað um cr ræða, og reynið að láta ekki á „yður sjást geðshræringu, þótt eitthvað virð- ist horfa illa. Með jwí að gera yður að ráðgjafa sínum sýnir barn yðar, að jrað treystir yður hið bezta, en meiri virðingarvott- ur getur engu foreldri hlotnazt. Og ef börnin hefja ekki sjálf máls á því, legg ég til, að þér

x

Það bezta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Það bezta
https://timarit.is/publication/1957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.