Það bezta - 15.01.1948, Síða 25

Það bezta - 15.01.1948, Síða 25
APALOPPAN 23 im inn á hann. Svo féll hann titr- andi niður á stól, en kona hans gekk út að gluggaaum og jileypti upp rennitjaldinu. Hapn sat kyrr, unz hann var orðinn stirður af kulda, og lét augun við og við hvarfla til gÖnilu konunnar, sem stóð á s verði við gluggann. Kertisstúf- urinn, sem hafði brunnið niður í postulínsstjakann, varpaði flögrandi skuggum á. loft og veggi, logaði skært að síðustu og slokknaði út af. Gamla mannin- um létti ósegjanlega, þegar hon- um þótti öruggt, að töfragripur- inn he'i'ði brugðizt, og lagðist þá aftur til hvíldar. Og litlu seinna fór gamla konan, hljóðlát og dauf í bragði, að dæmi hans. Hvorugt mælti orð frá vör- um, en bæði lágu og hlustuðu á tifið í klukkunni. Það brakaði í stiga. Myrkrið var lamandi. Það var barið á útidyrnar. „HvaÖ er petla!“ hrópaði gamla konan og flýtti sér fram úr rúminu. Aftur bárust högghljóðin um húsið. „Það er Herbert,“ æpti hún. ■Paö er Herbert!“ Hún hljóp til svefnherbergxs- dyranna, en maður hennar varð á undan henni þangað, greip ,um handlegginn á henni og hélt henni fastri. „Hvað ætlarðu að gera?“ hvísl- aði hann hásum rómi. „Það er drengurinn minn; það er Herbert!“ sífraði hún og brauzt um. „Ég hugsaði ekki út í, hve langt er frá kirkjugarðin- um hingað. Ég verð að opna fyr- ir honum.“ ,,I herrans nafni, hleyptu því ekki inn!“ kveinaði gamli mað- urinn. „Ertu hræddur við son þinn, maður!" æpti hún og reyndi að slíta sig lausa. „Slepptu mér! Ég er að koma, Herbert, — ég er að koma.“ Aftur var barið, og enn aftur. Með snöggum rykk losaði gamla konan sig úr örmum manns síns, þaut út úr herberginu og hljóp niður stigann. Gamli mað- urinn heyrði hringl í öryggis- keðjunni og neðri lokuna dregna frá með erfiðismunum. Síðan heyrðist gamla konan stynja mæðilega: „Efri lokan! Eg næ ekki til hennar!" En maður h nnar skreið á fjórum fótnm á sveinlierbergis- golfinu cg le.Aaði örviinaður aó rpalo’ • unni. Barx 3 onum tæk-

x

Það bezta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Það bezta
https://timarit.is/publication/1957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.