Það bezta - 15.01.1948, Síða 29

Það bezta - 15.01.1948, Síða 29
líM LISTIN AÐ LIFA 27 lirædd við eitthvað vegiia {aess, að við vitum ekki, hvað það í rauninni er. Við verffum að reyna að sjá hlutina alltaf í réttu Ijósi og sigrast á hræffslutilfinn- ingunni með aldrinum, en láta hana ekki þenja sig út í brjósti okkar, svo að hún síffar meir valdi okkur erfiðleikum.“ I heimsóknum mínum í einn skólann á fætur öðrum birtust mér hin mörgu og margvíslegu vandamál, sem börnin eiga við að stríða. í einum bekknum var b'til stúlka, sem hafði misst ann- an fótinn. Þegar umræðuefnið: „Hvernig eigum t iff að komast áfram, þrátt fyrir persónulega vankanta?" var á dagskrá, stóð hún upp og sagði: „Mig langar að biðja yður að koma fram við mig eins og alla hina nemend- urria. Ég vil ekki, að þér hvetj- ið þau til að bera skólabækurn- ar mínar.“ I sama bili fannst hinum börnunum sér líða betur, og svo var einnig um hana. Nú þurftu þau ekki framar að hvískra og láta eins og þau sæju ekki, hvað bagaði hana. Hún var orðin ein af þeitn. í öðrum bekk var drengur, nýfluttúr til Bandaríkjarina. Hainn bar enskuna skafckt fram, og vegna þess sniðgengu hin börnin hann. Dag nokkurn kom fyrir í sögunni, sem lesin var, persóna með skakkan framburð, og kennarinn talaði um, hve sárt væri oft fyrir barn að vera einangrað frá öðrum börnum. Eftir þann tínia var drengurinn umsvifalaust tekinn í samfélag bekkjarbræðranna. Hugsanir barnanna snúast að staðaldri um sambandjð milli drengs og stúlku. Það viðfangs- efni er Iíka tekið á dagskrá. Kennarinn bendir á, að í sálar- lífi mannsins séu fjórar sterkar hvatir: sjálfsbjargarhvötin, ævin- týrahvötin, áhuginn á hinu kyn- inu og þörf fyrir virðingu arin- arra. Það var hressandi aff heyra, hve opiriskátt drengirnir ræddu um „áhugann á hinu kyninu“ sem veigamikla driffjöður í lífi mannanna. Það var líka gaman að heyra, að þeir settu þessi innri öfl í samband við ástina, en ekki neinar frumstæðar hvatir, sem menn mættu skammast sín fyrir. Skólastjóri einn sagði mér, aff drengirnir í skóla hans hefðu al- veg ótilkvaddir þurrkað út öll ljótu orðin, sem skrifuð höfðu verið á veggina í salernunum. Vandamál ’ fjöískyldulífsins

x

Það bezta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Það bezta
https://timarit.is/publication/1957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.