Það bezta - 15.01.1948, Qupperneq 31
Kornmyllueigandinn, sem varð —
Skæðasfi keppinaufur Hollywood
Stytt úr The Minneapolis Sunday Tribune.
- Allari A. Mchiel -
Toseph Arthur Rank, hávax-
" inn, hæglátur kornmyllueig-
andi og hluthafi í kvikmynda-
húsafélögum víðsvegar á Eng-
landi, fór í fyrstu kynnisför til
Hollywood strax eftir stríðslok-
in. Kvikmyndaherrarnir, sem
vissu mæta vel, að hann hafði
drjúgan skerf af markaði þeirra
erlendis í hendi sér,tóku þessum
yfirlætislausa gesti með kostum
og kynjum. Hann gekk á milli
vinnustofanna og liorfði stórum
undrunaraugum á það, sem fyrir
hann bar. Hann sagði, að þetta
væri eins og að' koma í „álfa-
lieim.“ já, og hann bætti því
við, að hann mundi hafa gaman
af að reyna að búa til kvikmynd-
ir sjálfur. Kvikmyndaframleið-
endurnir brostu í laumi og
drógu hann í dilk með þeim
fjáðu aulabárðum, sem þessi
lokkandi dýrð hafði átt af stað
og kollsteypt.
Nú er bros þeirra ekki alveg
eins breitt. Kvikmyndir frá J.
Arthur Rank eru farnar að
flæða yfir Ameríku. Þær hafa
hlotið verðlaun, og- hann er bú-
inn að græða offjár á þeim. Að-
eins leigutekjur lians af Henrik
V. námu til dæmis einni millj.
dollara á tæpu ári, og af Cœsari
og Kleópölru yfir tveim millj.
dollara á einu misseri. Tíu aðrar
af k\ ikmyndum Ranks eru sýnd-
ar við húsfylli hvarvetna og liafa
fært heim sanninn um það, að
Hollywood-myndirnar eru ekki
einar þess megnugar að fylla
kvikmyndahúsin.
En sárlegast gremst Holly-
wood-mönqum þó, hve Rank
hefur rýrt amerískar myndir í
áliti erlendis. Hollywood-mynd-