Það bezta - 15.01.1948, Síða 37
Heilrœði handa þeim,
sem una illa starfi sínu.
Siarfsgleði
Stytt úr The American Magazine.
Dr. Willjam J. Reilly,
atvinnuráðunautur.
Jgr atvinna þín aðeins strit eða
hefurðu ánægju af henni? Ef
þér finnst hún ekki vera annað
en þrældómur, væri þér hollastað
láta hana róa, því fyrr þeim mun
betra. Atvinna er venjulega það,
sem njaður hefur ekkert gaman
af. Lífið er of stutt og verðmætt
til þess að. sóa.'því í stöðu, þar
sent þér leiðist eða þú þarft að
umgangast fólk, sem þér geðjast
illa að, eða starf, sem krefst
hæfileika, er þig skortir.
Eigi að síður hefur allar mín-
ar rannsóknir borið að þeim
brunni, að flestir Ameríkumenn
séu óánægðir með þau störf,
sem þeir gegna, og óski eftir að
gera eitthvað anrtað, Ég hef rek-
izt á bókara, sem heldur vildu
vera kennarar eða landkönnuð-
ir, og sölumenn, sem langaði
meira að vera húsgagnasmiðir.
Ég skeggræddi nýlega við son
ríks málaflutningsmanns, sem
þvingaður hafði verið til að
netna lög. ,,Ég Jteld, að mér tak-
ist einlivern veginn að þrælast í
gegnum þessar skrud.dur,“ sagði
hann. Heitasta ósk hans var að
verða jarðfræðingur.
Maður, sent leiðist starf sitt,
er sífellt óstyrkur á taugum og
í illu skapi, þreytist fljótt og
verður fórnarlamb slæmrar
meltingar og svefnleysis. Ef
manni hefur lengi verið Ijóst, að
hann licfur lent á skakkri hillu
í lífinu, verður hann önuglýnd-
ur og lítur svörtum augttrn á til-
veruna.
Fyrir skömmu talaði ég við