Það bezta - 15.01.1948, Side 55
HVEÍUUM KLUKKAN CLYMUR
53
ms
ar- ,,Vel mögulegt. En : þeir
íiindu líka lyktina og allir vissu
aí því.“
. ,,Það sem hún segir er sann-
leikur, Ingléssagði tatarinn,
ivafael. ,,Það er alkunnur hlutur
á meðal okkar.“
,,Ég trúi ekki orði af því,“
sagði Robert Jordan.
„Hlutaðu, Inglés,“ hóf Ansel-
®o máls. „flg er á móti allri
slíkri forneskju. En þessi kona
Pilar er álitin vera mjög lærð
í þeim sökum."
„En hvernig er þessi lykt?“
spurði Fernando. „Svo fremi ein-
hver slík lykt er til hlýtur hún
aÖ hafa einhver ákveðin ein-
kenni.“
„Þig langar til að vita það,
Fernandito?" Pilar brosti til
kans. „Þú heldur þú gætir fund-
ið hana?“
„Ef hún raunverulega er til
hví skyldi ég ekki geta fundið
hana eins vel og hver annar?“
„Já, því ekki?“ sagði Pilar
háðslega, stórar hendur hennar
voru spemrtar fram fyrir hnén.
„Hefurðu nokkurn tíma ferðazt
á skipi?“
„Nei. Og mun aldrei óska
mér.“
„Þá kynnirðu ekki að kannast
við hana. Því einn hluti henn-
ar er sú lykt, sem kemur þegar
(skip er á siglingu og það er
stormur og öll kýraugun eru íok-
uð. Þrýstu nefi þínu upp að
koparhandfanginu á fastskrúf-
uðu kýrauga á veltandi skipi
sem titrar og byltist undir þér
svo að magi þinn er holur og
máttvana, og þú hefur fundið
einn hluta lyktarinnar."
„Mér rnundi vera ókleift að
þekkja hana alleinasta af því að
ég mun aídrei stíga fæti mínum
á neitt ,skip," sagði Femando.
„Ég hef verið á skipi, oftsinn-
is,“ sagði Pilar. „Bæði til að fara
til Mexico og Venezuela."
„Hverjir eru hinir hlutar
hennar?" spurði Robert jordan.
Pilar leit á hann storkandi, hugs-
andi nú, með steigurlæti til
ferða sinna.
„Gott og vel, Inglés. Lærðu.
Það er mátinn. Lærðu. Gott og
vel. Eftir þetta með skipið v'erð-
urðu að ganga, ofan hlíðina í
Madrid í áttina til Puente de
Toledo og alla leið til mataderó-
ins, sláturhússins, og standa þar
á blautri gangstéttinni snemma
morguns þegar það er þoka frá
Manzanares og bíða eftir gömlu
konunum sem fara fyrir birt-