Það bezta - 15.01.1948, Síða 62

Það bezta - 15.01.1948, Síða 62
ERNEST HEMINGWAY m unum í Missoula. Hvaða lykt finnst þér bezt? Lyktin af reyr- grasinu sem Indíanarnir not- uðu í körfur sínar? Lyktin af sútuðu leðri? Lyktin af jörðunni á vorin eftir regn? Lyktin af sjón- um þegav þú gengur gegnum lyngið á strandhÖfða í Galiciu? Eða vindurinn af landi þegar þú nálgast Cuba í myrkri? Það var lyktin af kaktusblóm- um, baunagrasi og fjöruþangi. Eða viklirðu heldur lykt af steiktri svínsíðu snemma morg- uns þegar þú ert svangur? Eða af kaffi um leið og þú vakn- ar? ESa af fullþroskuðu epli þegar þú bítur í það? Eða af ávaxtamiði nýrunnum úr press- unni, eða af nýbökuðu brauði heitu úr ofninum? Þú hlýtur að vera hungraður, hugsaði hann, og’hann iá á hliðinni og hélt augu með dyrum hellisins í ljós- glætunni, sem stjörnurnar end- urkístuðu fiá snjónum. Einhverkom út undan ábreið- unni, og hann gat séð hvern sem það var standa kyrran upp við klettariðið til hliðar við hefiismunnan. Svo heyrði hann ríslandi hljóð í snjónum og síð- an laut hver sem það var niður ug hvarf til baka inn i hellinn. Jmiúca' Ég býst ekki við hún konrí fyrr en þau eru öll sofnuð, hugs- aði hann. Það er óþarfa tíma- eyðsla. Nóttin er þegar hálfliðin. Ó, María. Komdu fljótt nú, María, því það er ekki mikill tími. Hann -heyröi hið xnjúka hljóð af snjó fallandi af trjágrein ofan í snjó jarðarinnar. Ofurlít- ill golublær rann yfir. Hann gat fundið hana á andliti sér. Snögg- lega fann liann til ákafrar hræðslu um að hún kynni ekki að koma. Kviknandi óttugolan minnti hann á hve skammt. var til morguns. Meiri snjór féll frá trjágreinunum um leið og hann heyrði vindinn bæra krónur furutrjánna. Komdu nú, María. Elskan mín, komdu fljótt nú, hugsaði hann. Ó, komdu! Bíddu ekki lengur. Það hefur enga þýðingu framar að þú bíðir þangað til þau eru sofnuð. Svo sá hann hana koma út undan ábreiðunni, sem huldi hellismunnan. Hún stóð þar nokkur augnablik, og hann vissi það var hún, en hann gat ekl i séð hvað hún var að gera. Hann. blístraði lágt, og hún var ennþá við hellismunnaim geiandi eitt- hvað í myrkri skuggans af k4eUa-

x

Það bezta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Það bezta
https://timarit.is/publication/1957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.