Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 11

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 11
baráttan gegn „kommúnistum“ í verkalýðshreyfingunni. Var ekki hiS sama kjörorð haft á oddinum í áróðri þríflykkisins við fulltrúakjör á sambandsþing s.I. haust og ávöxturinn: sambandsstjórn gengislækkun- armanna þ. e. kaupræningja alþýðunnar og þjóna þeirra? Má, lesari góður, ryfja upp fyrir þér fyrirbæri, sem verður að telja mjög einkennandi fyrir starfshætti þríflykkisins í valdabaráttu þess og skemmdarstarfi innan verkalýðssamtakanna: Það kemur til þín fínn flokksbróðir, sem ekki hefur til þessa látið sér annt um stéttarsamtök þín. Hann vekur athygli þína á því, að kosning fulltrúa á Alþýðusam- bandsþing sé í nánd og að nauðsyn sé að vanda til hennar sem bezt. — Auðvitað ert þú sammála honum um það og fullvissar hann strax um að þú sért þaulkunnugur í félagi þínu og styðjir að sjálfsögðu einhverja úr hópi þeirra, er hafi reynzt bezt í hagsmunamálum stéttarinnar og félagsins. — En þinn fíni flokksbróðir er þá búinn að gerhugsa þetta mál og sýnir þér á blaði nöfn þeirra félagsmanna, sem þú átt að kjósa á sambandsþing. Þú bendir honum á, að þessir menn séu með öllu óþekkt- ir í félaginu, óvirkir, mæti aldrei á fundi, sumir jafnvel ekki þekktir að góðu, um aðra leiki vafi á að geti verið í stéttarfélagi verkamanna o.s.frv. — En flokksbróðirinn gefur þau andsvör, að þetta sé flokksmál: lýð- ræðið er í voða fyrir kpmmúnismanum. Þú veizt um framhaldið: Hinir óvirku og óþekktu komu í stað aktiv- istanna, sem þú þekktir af reynslu; þríflykkið sigraði og í kjölfar þess sigldi gengislækkunin með „vinsamlegri framkvæmd“ og fyrir- greiðslu Alþýðusambands íslands! ! Það, sem skeð hefur, er einfaldlega þetta: Með valdi sínu og áhrifum í þremur stjórnmálaflokkum hefur þeirri stétt, sem auðgast á ófarnaði vinnandi manna, tekizt í svip, í krafti kommúnistagrýlunnar, að fela fyrir sjónum of mikils hluta alþýðunnnar þá grundvallarnauðsyn, að láta aldrei flokksleg sjónarmið rjúfa stéttar- lega einingu alþýðunnar um brýnustu hagsmunamálin. Þetta tækifæri notaði svo íslenzka auðbraskarastéttin til að koma í æðstu trúnaðar- stöður heildarsamtaka okkar þjónum sínum, er síðan hafa opnað hin- um þjóðfélagslegu fylgjum hennar, dýrtíðinni og skortinum leið inn á heimili alþýðunnar. — í þríflykkinu innan A. S. í. hefur íslenzk alþýða þannig orðið að kenna á hvorutveggja í senn: stéttareiningu andstæð- inga sinna í þrem flokkum annars vegar og stéttarlegri sundrungu sjálfrar sín bins vegar. —- En nú veit alþýðan betur hvað undir býr, þegar sendimenn þríflykkisins ber að garði með „heilræði" í félags- málum hennar, að hróp þeirra: niður með kommúnista í verkalýðssam- tökunum þýði á máli sannleikans: niður með verkalýðssamtökin og lífskjörin. Hún mun vísa á bug ,,heilræðum“ þeirra, — og hún mun einnig í krafti dýrrar reynslu síðustu ára ekki láta flokkslegar fyrirskip- anir verða því til fyrirstöðu, að hún velji til forsjár stéttarsamtökum sín- um þá menn eina, sem hún treystir af eigin reynslu hvar sem þeir standa ' íflokki. Athyglisverðar tölur í nefndaráliti er Ásmundur SigurSsson alþingismaður fulltrúi sósíalista í fjárveit- inganefnd Alþingis lagði fram í þinginu fyrir skömmu er meðal annars upplýst eftir- farandi: SíSastliSin ár hafa útflutningstekjur þjóS- arinnar verið sem hór segir: 1945 ........................ 267,5 millj. 1946 ......................... 291,4 — 1947 ......................... 290,8 — 1948 ......................... 395,7 — 1949 ......................... 289,4 — 1950 (til októberloka) ....... 262,6 — Árið 1948 lcomu áhrif nýsköpunarinnar í ljós. Eftir það fór að bera á áhrifum þeirrar „viðreisnarstjórnar", sem tók við völdum 1947 og marshallstefnu hennar. Framlag ríkissjóðs til niðurgreiðslna vöruverðs á innlendum markaði hefur verið sem hér segir: Samkv. ríkisreikn. 1945 .......... 1946 ........... 1947 ........... 1948 ........... 1949 ........... Samkv. jjárlögum 1950 ........... 1951 ........... 26.487 þús. 16.245 — 35.930 — 44.611 — 36.500 — 33.000 — 25.000 — Hætt er við að 25 millj. hrökkvi skammt til að greiða niður alla þá verðbólgu, sem gengislækkunin hefur skapað. Hluti verklegra framkvæmda af rekstrar- gjöldum ríkisins hefur verið undanfarin ár sem hér segir: 1946 ........................ ca. 15,3 % 1947 ......................... — 14,0 — 1948 ......................... — 10,0 — 1949 ......................... — 9,1 — 1950 ......................... — 8,6 — 1951 ......................áætlað 7,6 — Að dálitlu leyti stafar þessi hækkun af því að nýir útgjaldapóstar hafa bætzt í fjár- lögin til hækkunar. En þó er hér um raun- verulega stórkostlega lækkun að ræða. * Vinnandi fólk í Tékkóslóvakíu hefur að meðaltali 3]/2 vikna orlof á ári með fullu kaupi. Lágmarkið er 14 dagar. Fimm ára starfsaldur í sömu starfsgrein veitir rétt til minnst 3 vikna orlofs. 15 ára til minnst 4 vikna orlofs. VlNNAN OG VERKAI.ÝÐURINN 5

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.