Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Blaðsíða 31

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Blaðsíða 31
Málverka- safn Kjarvals Nýlega er komið út á vegum bókaútgáfunnar Helgafell málverkasafn Jóhannesar Kjarvals og hefur Halldór Kiljan Laxness skrifað inngangs- orð fyrir bókinni. Ekki jnarf að fjölyrða nm, að bók þessi er ein hin glæsilegasta er sést iiefur að öllum frágangi og útliti, — og listamanninn Kjar- val jaekkir öll þjóðin. — Hér skulu þó tilfærð nokkur unnnæli H. K. Laxness nm þennan stór- brotna og sérkennilega listamann: „Kjarval tekur uppá því að fara svo nærri fjöll- unum að þau hætta að vera blá. Mynd hans af landslagi er ekki leingur mynd af fjarlægð, land- ið er horfið en eftir er dálítið horn af náttúrunni, nærmynd af jörðinni gerð í margslúngnu litrófi, l)rekka, gil, mosaþemba, hraunkúpa, klettur, lióll eða steinn, ein lýngkló. Litir hans eru af ætterni molltóna, margsamkembdir og oft með dimmri hneigð, ólíkir hinu skæra litrófi nútímalistar einsog ltún viðgeingst suðn' heimi, en þeim mun líkari því yfirbragði sem Island sjálft getur haft heilu árin á enda. Þeim sem vanastir eru að rýna í stóra fleti ýmsrar nútímalistar, einfalda og ein- lita, getur virst málverk eftir Kjarval grátt og þúngt í fyrstu, en við nánari athug- un kemur í ljós að það býr yfir leikandi litaauði niðrí rótinni ef svo mætti segja, ekki síður en íslenzka holtið þó í dumbúngi sé; pentskúf- VlNNAN OG VERKALÝÐURINN urinn leynir á sér í jiessu málverki, smáatriðin eru gerð af fimleik og natni, stnndnm eins og undir áhrifum af smágerðum útsaumi, stundum af pointillisma. . .. Einsog fleiri miklir tímamóta- málarar heimslistarinnar heyir Kjarval látlaust stríð um afstöðuna til viðfangsefnisins, hvað er rétt, leyfilegt eða jafnvel gerlegt í mynd; og auð- vitað líka, livað álirifavænlegt; það er gaman að sjá hve margvíslegar aðferðir hann reynir til að gæða yrkisefnið lífi.“ Andlitsmyndirnar hér að ofan eru frá 1929. Neðri myndina hallar Kjarval Fjarðarmynni. Myndin á hinni siðunni heitir Samtíðarmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.