Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Blaðsíða 28
Vetrarmynd fré Siglufirði
Ekkert svar
Magnús Kjartansson alþingismaður bar
fram á Alþingi 6. des. s.l. eftirfarandi fyrir-
spurnir til fjármálaráðherrans, Björns Ólafs-
sonar, varðandi flugvallarsamninginn og
framkvæmd hans. En ráðherrann kvaðst
ekki mundu svara þeim sakir þess að svör-
in myndu notuð til ófrægingar hinum er-
lenda samningsaðilja, þ. e. Bandaríkjanna:
1. Hversu margir menn starfa nú á Kefla-
víkurflugvelli? Hversu margir þeirra eru
Islendingar og hversu margir útlendingar?
2. Hversu margir íslendingar vinna tækni-
leg störf á vellinum, og hver eru þau störf ?
3. Hversu margar íbúðir hafa verið byggð-
ar á vellinum síðan Keflavíkursamningurinn
var gerður?
4. Hverjar aðrar byggingar hafa verið
reistar, og hver er stærð þeirra?
5. Hverjar hafa verið helztar atvinnu-
framkvæmdir aðrar á Keflavíkurflugvelli?
6. Hversu miklu hefur innffutningur til
Keflavíkurflugvallarins numið að magni og
verðmæti síðan flugvallarsamningurinn við
Bandaríkin var gerður?
7. Hversu miklar hafa verið tolltekjur rík-
issjóðs af þessum innflutningi ?
8. Hversu mikið hefur verið flutt inn til
vallarins á þessu tímabili af tóbaki, áfengi
og áfengu öli?
9. Hversu mikið fé hafa hinir erlendu
starfsmenn og fyrirtæki á Keflavíkurflug-
velli greitt í tekjuskatta hér innanlands á
þessu tímabili?
10. Hversu mikið fé hafa aðilar greitt í
útsvör til sveitarfélaga?
11. Hversu miklar gjaldeyristekjur hafa
bankarnir haft af Keflavíkurflugvelli á
þessu tímabili, og hvernig sundurliðast þær
tekjur?
12. Hversu mikill hluti af umferðinni um
völlinn stafar af samgöngum bandaríska
hersins við hernámssvæði sitt á Þýzkalandi?
22
13. Hverjar ráðstafanir hefur ríkisstjórnin
gert til að undirbúa, að íslendingar taki
sjálfir við allri starfrækslu á vellinum
1953?“
Vankantar og baksamningar
Það var þegar á almanna vitorði áður en
núgildandi togarasamningar gengu undir
próf reynslunnar, að á þeim voru miklir
vankantar sjómönnum í óhag. •— Það hefur
þegar komið í ljós, að vankantarnir, sem
kunnir voru, hafa verið áréttaðir af hálfu
þeirra sæmundanna í S. R. með baksamn-
ingum, er gert hafa illt verra.
Þann 10. des s.l. kom togarinn Fylkir í
höfn eftir viku útivist með 80 tonn af fiski,
sem landað var í Reykjavík. Sjómenn höfðu
unnið 16 klst. á sólarhring í þessum túr, en
samningar höfðu verið túlkaðir þannig, er
gengið var til atkvæða um þá, að 12 stunda
hvíldin gilti á öllum veiðum, þegar landað
væri í heimahöfn. Ut úr þessu hafa útgerð-
armenn snúið sig í krafti einskonar bak-
samnings milli stjórnar Sjómannafél. Rvík-
ur og F. í. B., með því að greiða sjómönn-
um kr. 30.00 (án vísitölu) fyrir hverja fjóra
tíma á sólarhring sem rænt hefur verið af
hvíldartíma þeirra í umræddum túr. — Fer
hér á eftir ein af þeim yfirlýsingum, sem
stjórn S. R. og F. í. B. undirrituðu á bak
við sjómennina, yfirlýsing sem er sameigin-
legur skilningur þeirra aðilja á því hvernig
framkvæma skuli vissan hluta samningsins:
„Nú hefur skip veriS á veiðum og hásetar
unnið samkvœmt reglum um hvíldartíma á
ísfiskveiðum fyrir erlendan rnarkað, en
landar þó afla sínum í innlendri höfn og
skal þá vera vítalaust, ef það er gert vegna
bilunar í vél eða á skipi, slysa, markaðs-
hruns, aflabrests eða af öðrum sambœrileg-
um ástœðumf!) Komi hinsvegar í Ijós við
ath. félagsstjórnanná að slíkar ástœður hafi
ekki verið fyrir hendi, skal útgerðarmaður
greiða hverjum einstökum háseta kr. 30.00
án verðlagsuppbótarf!) fyrir hvern fullan
sólarhring, sem unnið var eftir reglum um
vinnutíma á ísfiskveiðum fyrir erlendan
markað.“
Atvinnurekendur og þjónar þeirra í
stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna
13 des. s.l. var aðalfundur í Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Óþarft var
að búast við góðu í sambandi við stjórnar-
kjör í þessari stofnun eftir úrslit kosning-
anna á sambandsþing s.l. haust. Þó vakti
það furðu margra, hversu leynt og opinskátt
var gengið af hálfu forystumanna meirihlut-
ans í því að tryggja atvinnurekendum yfir-
tökin í stjórn fulltrúaráðsins. Kosningu
hlutu: Sæmundur Ólafsson, kexverksmiðju-
stjóri, formaður, Friðleifur Friðriksson, Ól-
afur Pálsson, Erlendur Pálsson og Kristín
Ólafsdóttir.
í stjórn Fulltrúaráðsins voru áður: Egg-
ert Þorbjarnarson, Eðvarð Sigurðsson, Þur-
íður Friðriksdóttir, Valdiriiar Leonharðsson
og Helgi Þorkelsson.
Hengifoss í Fljótsdal
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN