Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Blaðsíða 48
HEIMILIÐ
HÁTÍÐABAKSTUR
Brún terta með smjörkremi (hrærð)
500 gr. hveiti
250 gr. sykur
375 gr. smjörlíki
2—3 egg
2 tesk. kanel
2 tesk. negull
IYj tesk. sódaduft
% peli mjólk
Smjörkrem:
250 gr. flórsykur
250 gr. smjörlíki
KremiS er hrært afar vel. Það má lita
jtað meS ávaxtalit eSa eggjalit. Eins er betra
að bæta bragðið meS fáum vanilledropum.
Rússakaka (hrærS)
1 bolli sykur
1 bolli hveiti
2 egg
1 tesk. ger
100 gr. smjörlíki
Sítrónudropar
Peysumynstur
Deigið er látið á blikkdisk eða kringlótt
tertumót. Smátt skomum rúsínum er stráð
yfir ásamt sykri. Þó er betra að hafa kúren-
ur. Bakist við jafnan hita. — Kakan er borin
á borð í heilu lagi.
Rúlluterta
1 bolli hveiti
% bolli sykur
1 tesk. ger
2 egg
2 matsk. mjólk
Bakist við snarpan hita. Betra er að bera
deigið á bréf, sem strax er tekið af þegar
kakan er bökuð. Sultumauk er borið á og
kakan vafin upp volg.
Hörð terta (hnoðuð)
500 gr. hveiti
500 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
375 gr. kókusmjöl
1 egg
1 tesk. ger
>/2 peli mjólk
Hrærð terta
500 gr. hveiti
250 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
3 egg
2 tesk. ger
1/2 peli mjólk
Möndludropar
Mímiskökur (hrærðar)
250 gr. hveiti
250 gr. sykur
250 gr. smjörlíki
4 egg
Eggin aðskilin og hvítan stífþeytt og
hrærð saman við deigið síðast. Ur þessu eru
búnar til smákökur, sem bakast ljósbrúnar
við jafnan hita.
Vanillukökur (hrærðar)
250 gr. hveiti
300 gr. kartöflumjöl
250 gr. sykur
375 gr. smjörlíki
2—3 egg
1 tesk. ger
Vanilldropar eftir smekk
Sódakaka
500 gr. hveiti
250 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
125 gr. kartöflumjöl
2 tesk. ger
3 egg
Vanilludropar
Litlar sandkökur
500 gr. hveiti
250 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
2—3 egg
2 tesk. ger
1 tesk. kardimommur
]/2 peli mjólk
HÁTÍÐ AMATUR
Rjúpur
Rjúpurnar eru reittar og hreinsaðar. —
Rjúpur á ávallt að spekka, þ. e. a. s. stinga
fleskbútum í bringuna. Salti er stráð innan
í hverja rjúpu og hún bundin saman. Síðan
eru þær brúnaðar í smjörlíki, þá látnar í
pott og vatni og mjólk helt yfir. Soðnar í 1
klst. Gæta verður þess að lögurinn á þeim
sé alltaf nógur. — Þegar rjúpurnar eru soðn-
ar er sósan búin til á þann hátt, að 60 gr. af
smjöri og 60 gr. af hveiti er bakað upp og
þynnt með rjúpnasoðinu og í það látið 15—
20 gr. mysuostur, 1 dl. rjómi, 1 tesk. ávaxta-
mauk og sósulitur, þó ekki meir en svo að
sósan verði ljósbrún. Rjúpurnar eru bornar
fram með brúnuðuip kartiiflum.
Compot úr þurrkuðum ávöxtum
( ábœtisréttur)
Avextirnir eru þvegnir vel úr volgu vatni
og lagðir í bleyti 1—2 daga. Síðan eru þeir
soðnir í vatninu, sem þeir hafa legið í. Syk-
ur er látinn eftir smekk, soðið við hægan
hita. Þegar ávextirnir eru orðnir meyrir, eru
þeir teknir upp úr og lagðir í skál. Sé lögur-
inn ekki svo þykkur að hann líkist sírópi,
verður að sjóða hann lengur áður en honum
er helt yfir ávextina. Matarlím má láta í lög-
inn til að gera hann stinnari. Látið kólna
vel. Með þessum ábæti má hafa þeyttan
rjóma.
Sítron-fromage
(A bætisréttur jyrir 6)
3 pelar rjómi
3—4 egg
5 matsk. sykur
9 plötur matarlím
Rjóminn er þeyttur og eggjarauðurnar
hrærðar með sykrinum. Eggjahvítan er stíf-
þeytt. Síðan er öllu hrært saman og í ábæt-
inn látinn safi úr einni sítrónu eða tveimur
42
VlNNAN OG VERKALÝÐURINN