Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 16

Vinnan og verkalýðurinn - 15.02.1951, Síða 16
GUÐJÓN BENEDIKTSSON: BJÖRN ÞORSTEINSSON: VÍ SNABÁLKUR Til að spara spor og hlaup, spjátrungshátt og gjaldið, fœ ég mér heldur flösku en staup fái ég henni valdið. * Arkar vindur yfir grund eins og kind á svelli. Darkar í syndum seimahrund, sem varð blind í elli. * Þótt ég sveimi sitt á hvað og syndgi eftir vonum, renni ég sjaldan augum að annarra manna konum. * Þótt margt sé falt um foldarból fœst ei mjaltakona. Lífsins valta lukkuhjól lœtur alltaf svona. * Eklci fœ ég unað mér eilífðar- við gumið. Þegar leiknum lokið er lœt ég staðar numið. * Þar sem vonir vorsins kól varð ég oft að beygja mig. Þegar lífsins sezt er sól sezt ég upp og teygi mig. Miðdegisdúr Eg vil já mér beauty blund svo braggist á mér face-ið og mig þjái ekki um stund auðargnáarleysið. * Það er nú svo Sjómennirnir sigla á haj sœldarkjörum fláðir. Þeir sem komast ekki af einir verða dáðir. Hagnýt biblíuskýring Mal sá engan átti að fá, sem ekki nennti að vinna. En þacf er vinna að auðgast á andlitssveita hinna! Jólahátíðin og uppruni hennar Jólin, mesta hátíð kristinna manna, eiga sér býsna langa og merkilega sögu, sem ég ætla mér ekki að segja nema að nokkru leyti að þessu sinni. Það hafa oft orðið siðaskipti í veröldinni, því að menn hafa breytt um trú og siðgæðishugmyndir, eftir því sem þjóðfélagshættir hafa tekið stakkaskipt- um. Goðalíkneski hafa verið eyðilögð og hof og musteri brotin niður, en jafn- an hafa önnur veriö reist í staöinn og líkneski nýrra guða sett, þar sem hin fornu stóðu áður. I öllum þessum byltingum hefur helzta hátíð ársins, jólin, staöiö óhögguð, síðan endur fyrir löngu. I fornöld voru Persar mikil menningarþjóð, eins og þeir eru reyndar enn í dag. Þeir trúðu á marga guði, eins og flestar heiðnar þjóðir, en gyÖjan Miþra virðist hafa verið þeim einna hjartfólgnust. Hún var hin mikla móðir guðdómsins, verndari alls, tákn hreinleikans og ímynd ódauðleikans. Trúar- brögð Persa bárust út meðal þjóða við austanvert Miðjarðarhaf, og á tímum rómverska ríkisins var Míþra-dýrkunin mjög útbreidd innan heimsveldisins. Samkvæmt júlíanska tímatalinu, kenndu við Júlíus Sesar 100—44 f. Kr., voru vetrarsólhvörf talin þann 25., desember, en það var talinn burðardagur sólarinnar, því að þá tók daginn að lengja og máttur sólarinnar að vaxa. í Sýrlandi og Egyptalandi var mikil hátíð þennan dag, og um miðnætti hróp- uðu menn þar: „Mærin hefur oröið léttari. Birtan er að vaxa“. I Egyptalandi tignuðu menn hina nýfæddu sól í gervi reifabarns, en fæÖingardagur þess var 25. desember. Hin hreina mær, sem fæddi þannig son þann 25. des. var engin önnur en hin austræna gyðja, sem Semítar kölluðu himneska mey eða aðeins himneska gyðju. Míþra var persónugerving sólarinnar, hin ósigrandi sól, eins og hún var nefnd, en einnig talin í heiminn borin 25. des. Guðspjöllin fræða okkur ekkert um fæðingardag Krists, og í frumkristn- inni var ekki haldinn hátíðlegur fæðingardagur frelsarans. Þegar stundir liðu, tóku kristnir menn í Egyptalandi að telja, að hann væri fæddur þann 6. janúar (á þrettándanum), og þegar kemur fram á 4. öld var fariö að halda þann dag almennt hátíðlegan á Austurlöndum í tilefni af fæðingu Krists. Kirkja Vesturlanda viðurkenndi aftur á móti aldrei þennan dag, en um 300 10 VlNNAN OG YERKALÝÐURINN

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.