Bergmál - 01.02.1948, Side 20

Bergmál - 01.02.1948, Side 20
B E R G M Á L ------------------------------------ F E B R Ú A R víni, og þá geturðu sýnt mér þessa karla, sem þú ert svo hræddur við, ef þeir eru þar. „Gerum það“, sagði ég, „ég hef ásett mér að hafa augun á þeim í dag. En þú mátt ekki einblína á þá, því að slíkt getur vakið grun hjá þeim, að oss hinum standi stuggur af þeim. „Berðu engan kvíðboga fyrir því“, mælti Dick, „ég er sem sak- laust lamb“. Síðan gengum við niður í farrúmið. — Nokkrir af farþegunum sátu þar umhverfis borðið. Þar voru sumir að koma fyrir farangri sínum, aðrir að borða morgunverð, og enn aðrir að lesa í bók eða skemmta sér á annan hátt. En hinir tveir fyrrnefndu félagar voru * þar ekki. Við gáðum í hvern krók og kima, einnig inn í svefnrúmin, og fundum þá ekki. — „Guð minn góður“, hugsaði ég, „nú eru þeir í einhverjum leyniklefanum að búa sig undir að framkvæma hið óttalega áform“. Að vera í þessum efa var djöfullegt ástand. Dick spurði brytann, hvort fleiri væri hér niðri en þeir, sem við sáum. „Já“, kvað brytinn, „það sitja tveir menn inni í reykingaherberg- inu“. Reykingaherbergið, lítið, snoturt herbergi, vel útbúið að húsbúnaði, var rétt við hliðina á þvottaherberginu. Við hrundum hurðinni upp og gengum inn. Það var sem af mér væri lyft stórum steini. Það fyrsta, sem ég rak augun í, var hið magra og hrukkótta andlit Flanningans, hans fast samanbitni munnur og hvössu augu. Félagi hann sat gagnvart honum. Þeir sátu að drykkju og hrúga af spilum lá á borði fyrir framan þá. Ég hnippti í Dick, sem merkja skyldi, að þetta væru þeir, sem við leituðum að. Þeir tóku að spila og virtust ekki taka neitt eftir okkur. Við Dick fengum okkur sæti. Ég hafði alltaf augun á þeim. Spilið, sem þeir spiluðu, kölluðu þeir „Napoleon“. Þeir voru auðsjáanlgea báðir mjög færir spilamenn. En ég gat ekki annað en dáðst að sálarþreki þessara manna, sem rétt áður en þeir framkvæmdu hið hræðilega áform sitt gætu skemmt sér þannig við spil. Þótt báðir væru góðir spilamenn, virtist þó sem Flanningan yrði heldur undir. Loks kastaði hann spilunum frá sér og kvaðst ekki vilja spila lengur. „Ég spila alls ekki lengur, því að nú um langan tíma hef ég ekki fengið eitt einasta brúklegt blað“. 18 /

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.