Bergmál - 01.02.1948, Page 55

Bergmál - 01.02.1948, Page 55
1 9 4 8 ----------------------------------------- B E R G M Á L Ég er líka óviss um það hvort ég muni nokkurn tíma finna þá konu, sem mér nú finnst að ég þrái. Ég harma það, að hafa lifað því lífi, sem ég hef lifað og á mér enga ósk heitari en þá, að geta byrjað að nýju líf mitt. En líklega lief ég vaknað of seint til þess að geta höndlað hamingjuna. Vesæll syndari. S v a r : Það er laglegt ástand að tarna, vesalingur. Þér hafið auðsýnilega orðið fyrir þeirri reynslu, að framtakssamar og yður eldri konur hafa klófest yður, áður en yður gæfist tími til að átta yður á lífinu og þekkja sjálfan yður. Konur þær, sem þér hafið þekkt, hafa frekar komið yður í móðurstað, en að þær hafi verið yður unnustur. Nú eruð þér loks vaknaður til lífsins, en þá eruð þér, því miður, ekki frjáls ferða yðar. En um sambandið við hina núverandi unnustu yðar hlýtur margt fleira vera að segja en bréf yðar tjáir. Það er því ógerningur fyrir ókunnuga að ráðleggja yður eitt eða annað. Hið eina, sem ég get sagt yður er það, að saga yðar er ekkert einsdæmi. Fæstir karlmenn vita fyrr en þeir eru komnir á yðar aldur, hvernig sú kona á að vera, sem þeir óska að lifa samvistum alla sína ævi. Mikinn sársauka og vandræði gætu karlmenn sparað sér og öðrum, ef þeim gæti skilizt, að það er þeim sjálfum fyrir beztu að fara gætilega í ástum, að það er varhugavert að binda sig of snemma. Á yðar aldri eiga menn oft hamingjuríkari ár fram undan en þau, sem eru að baki. Hvaða stefnu, sem þér nú takið, — og hana verðið þér sjálfur að ákveða — skuluð þér umfram allt horfast óhræddur í augu við þann veruleika, er þér nú loks hafið uppgötvað. Sannleikurinn er oft bitur á bragðið, en hann er hollari, en öll önnur læknislyf. Hún er veikgeðja. — Hann er óþolinmóður. Kæra Helena! Ég mun því miður vera mjög ósjálfstæð að eðlisfari. Ég er veik- geðja og þarfnast stöðugrar uppörfunar og samúðar. Mér hættir til að fá þunglyndisköst og verða svo óánægð með sjálfa mig og tilver- una, að ég hef allt á hornum mér, get oft ekki varizt gráti. Unnusti minn er í stökustu vandræðum með mig, þegar þetta hleypur í mig. 53

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.