Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 48

Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 48
B E R G M Á L -------------------------------------- F E B R Ú A R kafbáturinn upp á yfirborðið eina ctimma rigningarnótt; þokan var svo mikil, að vart sá handa skil. Kafbátsforingjanum var það ijóst, að hin minn.stu mistök í stjórn bátsins gat orðið þeim að fjörtjóni. Brezku strandvarnarliðsbát- arnir voru ískyggilega nálægt og við minnsta grun af þeirra hálfu mundu leitarljós margra þeirra þjóta aftur og fram um hafflötinn og uppgötva kafbátinn. Nær og nær færðust þeir ströndinni og for- inginn fór nú að óttast að hann rækist ef til vill á eitthvað sker. Prien gaf skipun um að stöðva vélarnar. Hann tók sér í hönd sjón- aukann og horfði í hann upp á land. í gegnum þokuna kom hann auga á ljós á ströndinni. Það var ekki um að villast að þarna var gefið hið umtalaða merki, sem Canaris hafði ákveðið: Einu sinni langur glampi, tveir stuttir og einn langur. Gúnther Prien kafbátsforingi skipaði þegar að setja á flot gúmmí- bát og sendi hann í land með einum manni. Það átti að bjarga „vini“ frá Englandi. Það leið ekki á löngu unz Prien heilsaði með liandabandi Ortel-Wehering, úrsmið frá Kirkwall, sem nú steig um borð í kafbátinn. Án nokkurrar tafar hvarf kafbáturinn í djúpið. Ortel lagði nú spilin á borðið. Hann var með nákvæm sjókort, með teikningum af Scapa Flow og víggirðingunum þar. Hann benti á hvar hinn varnarlausi hluti var. Pren tók við lcortunum, og er hann hafði athugað þau í káetu sinni, gekk hann að taltæki og gaf skipanir sínar. Kafbáturinn þaut áfram niðri í sjónum, marga króka varð að fara, en loks voru þeir komnir inn í Scapa Flow. „Hafið tilbúin tundurskeytin", skipaði Prien — og þessi aflöngu silfurlitu morðtæki smugu inn í hylkin, sem þeim var skotið úr. Sérhver maður var á sínum stað. Nazistarnir biðu átekta. Þeir vissu að lítilfjörleg mistök gátu haft það í för með sér að þeir lentu í víg- girðingunum og fengju sér búna vota gröf í herbúðum fjandmann- anna. Sjónpípan ein stóð upp úr sjávarfletinum og nú var leitað að skotmarki. Þeir voru staddir í Scapa Flow þar, sem enginn þýzkur sjóliði hafði nokkru sinni kornið áður. í gegnum þokuna sýndi sjónpípan greinilegar myndir nokkurra tundurspilla og beitiskipa. En Prien var að leita að stóra skrokknum, sem lá lengst í burtu; hinu risavaxna orustuskipi ROYAL OAK. Vélarnar voru stöðvaðar. Sjónpípan var stillt svo sent bezt mátti 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.