Bergmál - 01.02.1948, Side 45
1 9 4 8 ---------------------------------------------B E R G M Á L
var saminn í Versölum. í þá daga grunaði engan hvílíkar gerbylt-
ingar áttu eftir að eiga sér stað í Þýzkalandi, hve Ruhr-dalurinn,
sem þá var hernuminn af Frökkum, mundi skjótt hverfa aftur til
Þýzkalands og hve skjótt Þýzkaland mundi hefja sína hefndar-
styrjöld.
En þýzki flotinn og þýzki herinn, eða æðstu herforingjarnir voru
þess fullvssir, að eftir tíu til fimmtán ár mundi verða önnur styrjöld.
Vegna þessarar fullvissu voru sendir út njósnarar og árið 1923 var
alls ekki of snemmt.
Alfred Wehering var einn af yngstu skipherrunum í þýzka flot-
anum. Hann hafði getið sér góðan orðstý sem skipherra í fyrri
heimsstyrjöldinni. Canaris hafði mikið álit á hæfni hans og valdi
hann þess vegna til hins þýðingarmikla nýja starfs árið 1923. We-
hering átti að verða sölumaður fyrir þýzkt úrsmíðaverkstæði. Sem
virðulegur fulltrúi meinlauss fyrirtækis, gat hann heimsótt flest
lönd Evrópu. Hann átti að hafa opin augun fyrir öllum nýjung-
um í skipaiðnaðnum í þeim löndum sem hann ferðaðist um.
Eftir að hafa starfað að þessu í þrjú ár var hann sendur til Sviss,
þar sem hann lagði stund á úrsmíði og varð brátt mjög fær í þeirri
iðn. Árið 1927 fluttist hann búferlum til Englands. Enginn vissi að
hann var sjóliðsforingi, ekki einu sinni að hann var Þjóðverji. Það
var leikur einn fyrir Canaris að útbúa handa honum nýtt vegabréf
og nýtt nafn. Hann notaði hið algenga svissneska nafn Albert Ortel.
Hann settist að í Kirkwall í Orknéyjum, sem er skammt frá her-
skipalæginu í Scapa Flow. Kirkwall og héraðið umhverfis, þarfn-
aðist góðs úrsmiðs. 1 fyrstu vann Ortel, sem afgreiðslumaður í ýms-
um smáverzlunum, sem seldu skartgripi og glingur. Auk þess tók
hann að sér að gera við úr í frístundum sínum. Hann var vand-
virkur og ódýr og orðstír hans breiddist út. Ortel stillti lífi sínu í
hóf og sparaði hvern eyri í þeim tilgangi að draumur hans um eigið
úrsmíðaverkstæði mætti rætast sem fyrst. Þar mundu sjóliðarnir frá
Scapa Flow kaupa úr og aðra minjagripi, og loksins kom að því að
draumur hans rættist. Ortel varð eigandi lítillar verzlunar, sem seldi
skartgripi og svissnesk úr. Viðskiptin voru mikil eftir ástæðum.
íbúar Kirkwall voru ekki ríkir, en þeir höfðu efni á að kaupa annað
slagið, ódýr úr og penna. Úr, sem var gert við af Ortel gekk við-
43