Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 47

Bergmál - 01.02.1948, Blaðsíða 47
1 9 4 8 ---------------------------------------------B E R G M Á L að neðansjávargildrurnar og -netin, sem loka áttu siglingum öllum til Scapa Flow að austanverðu voru ekki á sínum stað. Þau höfðu verið rannsökuð og í Ijós hafði komið að þau voru ekki örugg, voru orðin slitin og fúin í sjónum og étin af möðkum og ormurn. Gildr- urnar og netin höfðu því verið fjarlægð til viðgerðar. Ef til vill hefur Ortel tekizt að sjá þegar þeim var lyft upp. Nýjar girðingar áttu að koma frá Suður-Englandi og voru á leiðinni, en alls konar hindranir af völdum styrjaldarinnar töfðu mjög fyrir. En Ortel vissi að enginn annar enn hann af utanaðkomandi mönnum í heiminum vissi um þetta að það væru stór göt í varnargarðinn umhverfis Scapa Flow. Það var í október, sem Ortel komst að þessu. Þann dag lokaði hann verzlun sinni nokkru fyrr en venjulega. „Það er rigning og það koma víst ekki fleiri viðskiptavinir í dag“, sagði hann við búð- arstúlkuna. Hann lokaði járnhlerunum vandlega fyrir gluggunum og fór heim. Heimili hans var notalegt með algerlega enskum blæ. Á arninum logaði eldur og upp yfir hékk ketill með vatni. Albert opnaði fyrir útvarpið að vanda til að lrlusta á fréttir af styrjöldinni. Síðan gekk hann að fataskápnum og tók þaðan fram heyrnartól; (í fataskápnum virtist vera gamaldags útvarpstæki, með þessum einkennilegu gam- aldags tökkum og mælum. En þetta var stuttbylgjusenditæki. Ortel studcli á takka og snéris kífu og muldraði síðan eitthvað í lágum hljóðum í taltækið. Skilaboðin voru send til þýzka ræðismannsins í Hollandi, sem þá var enn hlutíaust. Frá Haag var skilaboðunum komið áleiðis í mesta flýti til Canaris, sem innan skamms vissi að varnir Scapa Flow voru í molum og opin leið væri fyrir kafbáta til árása og að nokkrir dagar mundu líða unz hægt væri að lagfæra. Canaris tók óðara til starfa. Skipanir á dulmáli voru sendar öll- um kafbátum í Norðursjónum og Ermarsundi. Þýzka flotasérfræð- ingnum við sendisveitina í Hollandi var gert að hafa samband við Ortel — Wehering — í Kirkwall. Giinther kafbátsforingi á kafbátnum B—06 var valinn til að fram- kvæma hið áætlaða verk. Hann fékk fyrirskipanir um að fara með skip sitt að austasta tanga Panómaeyju í Orkneyjum, og þar kom 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.