Bergmál - 01.02.1948, Page 53

Bergmál - 01.02.1948, Page 53
1 9 4 8 -------------------------------------- B E R G M Á L Maðurinn, sem hér um ræðir, á ekki enn konu og börn, — aðeins unnustu. Haldið þér það í raun og veru, stúlka góð, að unnusti yðar verði yður betri sem eiginmaður en bann er nú? Haldið þér að það sé rétta leiðin til þess að bæta hann, að samþykkja með þögn og þolin- mæði, að hann hafi alltaf rétt fyrir sér, hversu fráleitt sem það er og hversu illa sem honum þóknast að leika yður? Yður mun aldrei takast að kenna þessum manni neitt. Ekki einu sinni prúðmannlega borðsiði. Unnustan er dálitið afbrýðisöm. Kæra Helena! Ég á í fórum mínum Ijósmynd, sem ég hef sjálfur tekið af gamalli vinkonu minni. Ég held sérstaklega mikið upp á þessa mynd vegna þess að hún er mjög vel heppnuð frá listrænu sjónarmiði séð. Unn- usta mín heimtar það af mér, að ég eyðileggi myndina eða hótar að koma henni fyrir kattarnef sjálf að öðrum kosti. Hún er afbrýðisöm vegna þess að ég mun einhvern tíma í áheyrn hennar hafa farið vingjarnlegum orðum um stúlkuna, sem myndin er af. Nú segir unnusta mín, að ég verði að velja á milli sín og myndarinnar. Karl. S v a r : Þér hafið auðsýnilega neitað því mjög ákveðið að verða að ósk- um unnustu yðar um að eyðileggja myndina. Til þessa geta verið fleiri en ein ástæða: 1. Yður linnst unnustan sýna yður vantraust með þessari kröfu sinni. 3. Myndin er yður dýrmæt vegna þess að hún ber smekkvísi yðar vitni. 3. Þér minnizt stúlkunnar, sem myndin er af, með hlýjum huga og þakklæti, finnst hún og þær saklausu tilfinningar yðar vanvirtar með því að kasta myndinni. Hin síðast nefnda ástæðan er e. t. v. — meðvitað eða ómeðvitað — ríkust. Hverju sinni, er yður verður litið á myndina, minnizt þér ósjálfrátt. liðinna samverustunda, og milli ykkar liggja þræðir vin- áttu og skilnings. 51

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.