Víðförli - 01.09.1947, Page 17
ÞJÓÐKIRKJA ÍSLANDS
143
viðurkennt anda eða bókstaf þessara rita. Ef „and.i“ vorrar
kirkju er ekki lengur sá, sem )>ar er tjáður, þá getur hann alveg
eins verið sá, sem birtist í kaþólskum játningum gagnsiðbótar-
innar. Ef engin skuldbinding fekt í vígsluheitinu gagnvart
grundvallandi heimildum um evangelísk-lúthersk sjónarmið, er
þá ekki rómverskur skilningur á embætti, sakramentum, verk-
um, guðsafstöðu o. s. frv. eins í „anda“ vorrar kirkju og hver
annar? Eða væri máske heimilt og frjálst að boða augljósa páp-
ísku í þjóðkirju lslands?
Evangelísk-lúthersk kirkja styðst ekki aðeins við þessi leið-
eögurit um anda og markmið siðbótarinnar, þau, er marka sér-
stöðu hennar. Hún byggir og á þrem almennum játningum allr-
ar kristni: Postullegu trúarjátningunni, „Nikeu“-játningunni og
s. n. Aþanasiusar-játningu.
Þetta eru játningar kirkjunnar í heild í öllum hennar deild-
um (einkum þó tvær þær fyrstu). Þeir, sem kynnu að vilja
leggja ailar játningar fyrir óðal, væru m. ö. o. að segja sig úr
lögum við kristna kirkju yfirleitt.
Þessar almennu játningar hafa ekki praktíska þýðingu í lífi
íslenzku kirkjunnar, nema postullega trúarjátningin, sem flutt
skal við s'kírn og fermingu, þótt einstöku prestar muni hafa
brugðið út af því.
Nikeu-játningin, sem svo er nefnd, er í raun réttri messu-játn-
ing vorrar kirkju, álíka forn og postullega játningin og samstæða
hennar í öllum atriðum, að kjarnanum tii hin ævaforna skírnar-
játning safnaðarins í .Jerúsalem, en aukin mikilvægum yfir-
lýsingum hins merkasta almenna kirkjuþings sögunnar, Nikeu-
þingsins. Þessi játning er að formi til hið dýrlegasta verk og
geldur kirkjan enn Leirár-skolvatnsins í því, að íslenzk messa
sku'li vera rúin þessu djásni.
„Aþanasiusar“-játningin, — hún er ekki eftir Aþanasius eða að
neinu leyti frá honum runnin, — hefur engan veginn þann sess í
almennri vitund kirkjunnar sem hinar tvær, enda talsvert ólík
þeim að blæ. IJún komst til vegs sem sálmur fremur en játning.
Hún hefur ekki verið viðurkennd af Austurkirkjunni, þótt þá