Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 40
Sigurbjöm Einarsson:
Orð eru dýr
„Orð eru dýr, þessi andans fræ“, segir Einar Benedikts-
son. Orð eru dýr, segir Biblían og kristin trú í annari, enn
dýpri og alvarlegri merkingu. Af orðum þínum muntu verða
réttlættur og af orðum þínum muntu verða sakfelldur,
segir Jesus. Því að orðin eru fræ andans eða hugans og bera
því vitni, sem inni fyrir býr. Af gnægð hjartans mælir munn-
urinn. Ef tréð er skemmt, er ávöxtur þess skemmdur. Svo
margt, sem talað er í hugsunarleysi, þá er þó hugarfar
mannsins á bak við hvert orð, sem hann mælir.
En vald málsins yfir hugsuninni er líka mikið. Raunar
er hugsun og mál svo nátengt, að ekki verður aðgreint. Og
sömuleiðis mál og heyrn. Gætið að, hvað þér heyrið, segir
Jesús. Því dafnar ljótt og spillandi mál, að hlustir eru opn-
ar til að veita því viðtölcu. Og því spillist hugsun, að margt
er talað hugsunarlaust eða spilltum huga.
Einhver hefur líkt orðunum við peningaseðla. Gildi þeirra
er undir því komið, hvaða trygging er á bak við. Á bak
við hvern seðil, sem vér tökum eða látum, er ábyrgð Lands-
bankans. Vér treystum þeirri ábyrgð. En sé land að verða
gjaldþrota, hætta menn að trúa ábyrgðinni á bak við. Þá
falla peningarnir. Þá þýðir ekkert að prenta stærri eða
skrautlegri seðla og hærri tölur. Verðgildið fellur. Verðgildi
orðanna er líka undir því komið, hvað á bak við er. Þegar
manndómi hrakar, falla orðin í gildi. Þegar manneskjan
smækkar, verða orðin tóm. Þau glamra hærra og gjalla
meir, en gilda minna og ekki neitt.
Ég hef nýlega lesið tvennt harla athyglisvert, sem snertir