Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Síða 10
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
Svanhildur Egilsdóttir og jón Sóimundsson:
A kajökum við Snæfellsnes
sumarið 1999
Þegar kajak er nefndur dettur
eflaust flestum Grænland í hug,
enda er kajakinn upprunninn
þar. Islenskir krakkar hafa í
gegnum tíðina verið duglegir við
að smíða sér fleytur svipaðar
grænlenskum kajökum þótt þær
hafi sjaldnast hentað til langra
ferðalaga. Sumarið 1999
komumst við að því að kajakróð-
ur er hinn skemmtilegasti ferða-
máti sem hentar vel að sumarlagi
við strendur íslands.
Undirbúningur ferðarinnar
Ahuga okkar á
kajakróðrum má rekja
til blaðagreinar eftir
Vestfirðing nokkurn
sem útbúið hafði byssu-
stand á kajak og notaði
hann svo til fuglaveiða
með góðum árangri.
Haustið 1997 keypti
Jón sér kajak og fljótlega
vorum við farin að hug-
leiða kaup á öðrum í
þeim tilgangi að nota þá
til ferðalaga. Undirbún-
ingur ferðarinnar sem
við ætlum að segja frá
hér hófst haustið 1998
og um veturinn spáðum við í
hvert ætti að fara. Annarsvegar
kom til greina að fara með kajak-
ana á bílnum og róa stuttar ferðir
út frá honum en með því móti
mátti fara yfir meira svæði og velja
úr skemmtilega staði. Hinn
möguleikinn, sem reyndar varð
fyrir valinu, var að róa inn Breiða-
ijörð og enda á Osi á Skógar-
strönd en þaðan er Jón ættaður.
Vorið notuðum við til æfinga og
undirbúnings. Mikill tími fór í að
velja hentugan búnað því allt
þurfti að vera sem léttast og taka
sem minnst pláss. Sérstakt göngu-
tjald keyptum við, lítinn prímus
og allskyns viðleguútbúnað.
Haldið af stað
Upphaf ferðarinnar var ákveðið
föstudaginn 16. júlí 1999. Þá um
morguninn var ágætis veður og
við ráðgerðum að leggja af stað kl.
15:00 frá Brimilsvöllum um 6 km
innan við Ólafsvík. Ástæðan fyrir
nessu vali var sú að við vorum
túin að róa svo oft frá Ólafsvík að
Vallnabjargi í æfingaferðunum að
okkur fannst óþarfi að fara þá leið
eitt skiptið enn. Klukkan 15:00
var há fjara og ætluðum við að
láta aðfallið létta okkur róðurinn
innúr. Þá var hinsvegar kominn
norðvestan kaldi þannig að við
ákváðum að bíða. Er líða tók á
daginn lægði og um kl. 19:00 vor-
um við tilbúin að hefja róðurinn
undir nákvæmu eftirliti nautgrip-
anna á Brimilsvöllum sem sýndu
brölti okkar mikinn áhuga. I upp-
hafi leist Svanhildi eldeert á blik-
una þar sem enn var töluverð
undiralda. Þá var bara að bíta á
jaxlinn og bölva í hljóði. Fyrsti
áfangi var að fara fyrir Búlands-
höfða, en að sitja á haffletinum og
horfa upp Búlandshöfða er stór-
fengleg sjón. Er inn fyrir höfðann
kom kíktum við á
strandaða rekbauju
Hafrannsóknastofnun-
ar og fengum okkur
súkkulaði og orku-
drykk. Súkkulaði er
góður orkugjafi, en í
þessari ferð komst
Svanhildur að auka-
verkunum súkltulaði-
áts, gífurlegur brjóst-
sviði og það þrátt fyrir
að hún væri með uppá-
halds súkkulaðitegund-
ina sína. Kostir ferðamáta sem
þessa eru margir. Að líða áfram
nær hljóðlaust, ráða eigin ferð-
hraða og geta skoðað það sem
manni sýnist er vitanlega mikill
kostur. Fuglarnir gefa manni auga
en það er ótrúlegt hversu nálægt
þeim maður kemst. Vaðandi
þorskur og kríur í sílisgerjum er
ekki óalgeng sjón og hnísur og
selir komu oft nálægt bátunum.
Það sem í minningunni ber þó
hæst frá þessum hluta leiðarinnar
er sólsetrið sem unun var á að
horfa.
Róið fyrir
Grundarfjörð
Áfram rerum við og
ráðgerðum að fara í land
við Krossnesvita sem
stendur í mynni Grund-
arfjarðar, en þegar þang-
að kom sáum við engan
hentugan lendingarstað
og héldum því áfram.
Næsti áfangastaður var
Melraldcaey og þar ætl-
uðum við í land til að
teygja úr oklcur og fá
okkur að borða. Er
þangað kom vandaðist
málið því hvergi gátum við séð
hentugan stað til að lcomast upp í
eyjuna. Þá var annað hvort að róa
ltringum hana og fmna lendingu
eða að halda áfram yfir Grundar-
fjörð. Yfir Grundarfjörð héldum
við og komum um miðnætti í
land neðan við sumarbústaði und-
ir vestanverðu Eyrarfjalli, þá eklci
í algjörri afslöppun. Bjarnarhafnarfjall í baksýn.
Mynd: Jón
Undir Vallnabjargi. Mynd: Jón