Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Blaðsíða 63
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
61
Mitt bernskuheimili
Húsið að Grundarbraut 18 í
Ólafsvík, gamli sparisjóðurinn og
seinna kallað Helda var byggt
1920 og er líklega eitt elsta stein-
steypta húsið í Ólafsvík. f húsinu
eru 2 samliggjandi svefnherbergi,
lítil stofa og eldhús, undir húsinu
er kjallari.
Eg fæddist 16. janúar 1951 og
ólst upp í þessu húsi til 14
ára aldurs. Foreldrar mínir
Egill Guðmundsson og
Guðlaug Sveinsdóttir
keyptu húsið af Helga Sal
og fluttu í það í nóv.
1955. Þá gekk mamma
með 5. barnið, Sigga sem
fæddist svo 15. maí 1956,
en við erum 10 systkinin.
Eg fæddist í Reykjavík,
Svenni bróðir fæddist á
Lækjarhvoli hér í Ólafsvík
hjá ömmu okkar og afa
Agústu og Guðmundi.
Ella og Gvendur fæddust
í Móabæ þar sem foreldrar oldtar
hófu búskap, en það var pínulítið
hús fyrir neðan Sandholt ca. nr. 8.
Síðan fæddust eins og áður sagði
Siggi í Heklu og þar á eftir í því
húsi Bubba, Gústi, Hólmar, Silla
og Agla, sem fæddist í sept. 1965.
Við fluttum svo fyrir jólin það ár í
raðhús að Vallholti 9 og ólumst
öll þar upp.
í gamla húsinu okkar var auð-
vitað mjög þröngt. í litla herberg-
inu sem er ca. 12 fm. voru 2 kojur
Eftir Eygló Egilsdóttur
og eitt rúm. Við Ella sváfum sam-
an í koju og Gvendur og Siggi
saman.
Gugga á Mosfelli
og Inga danska
Frammi í hjónaherberginu var
eitt barnarúm og venjuleg
barnakarfa svo sváfu alltaf eitt -
tvö börn uppí hjá mömmu og
pabba. Mamma var heimavinn-
andi eins og gefur að skilja með
svo stórt heimili og vinnutími
hennar jafnan langur. Ég var mjög
snemma farin að hjálpa til á heim-
ilinu við að passa yngri systkini og
vaska upp og veit að það var mikil
hjálp í því. Ég á mjög góðar
minningar frá þessum 10 árum
sem við bjuggum í þessu húsi. Þá
var ekki komið sjónvarp en við
hlustuðum á barnatímana, lög
unga fólksins á þriðjudögum og
alla óskalagaþætti. Ekki má
gleyma leikritunum á fimmtu-
dagslcvöldum sem byrjuðu eklci
fyrr en sinfóníutónleikarnir voru
búnir, en það var oft erfitt að bíða
eftir því.
Foreldrar mínir voru kringum
þrítugt á þessum árum og áttu
marga góða vini, ungt fólk sem
var að slá sér upp og komu vin-
konur mömmu með kærastana í
heimsókn á kvöldin. Það var
óskaplega gaman að fá að vera
vakandi og hlusta á þetta
skemmtilega fólk tala saman.
Gugga á Mosfelli kom oft eftir há-
degið með prjónana sína og Inga
danska kom alltaf á sunnudögum
til að spila. Á föstudagskvöldum
komu vinkonur mömmu og settu
í hverja aðra rúllur og permanett.
Þá kom upp sú hugmynd að þær
greiddu 100 krónur hver í sjóð í
hvert sinn og leggðu til við stofn-
un leikskóla sem kvenfélagið sá
um.
Haltu kjafti brjóstsykur
Á vorin fóru bátarnir sumar-
langt til síldveiða austur á firði.
Þegar svo pabbi var væntanlegur
heim á haustin biðum við eldri
krakkarnir og vöktum fram á nótt
eftir honum. Það var mikil eftir-
vænting. Ég var mikið hjá ömmu
minni í Brekkuhúsi og svaf oft hjá
henni fram að fermingu og á
mjög góðar endurminningar frá
þeim tíma. Hún kom stundum
og sótti mig og leiddi í myrkrinu
yfir Skálholtstúnið
með olíulukt sem lýsti
okkur.
Ég man líka eftir
mörgu af gamla fólk-
inu hérna af því að ég
var svo mikið hjá
• henni og fékk að fara
með í heimsóknir til
þeirra.. Ég smakkaði
t.d.. blóðpönnukökur
hjá Fönnu gömlu í
Mýrarhúsum og þótti
góðar. Svo kom ég oft
í Kaupfélag Ólafsvík-
ur sem var þar sem
litli salurinn er á Hótel Höfða en
þá var gengið inn á horni hússins
og amma gaf mér haltu kjafti í
korter (brjóstsykur).
Langistígurinn
alveg fyrir okkur
Ég held að við krakkarnir höf-
um borið virðingu fyrir gamla
fólkinu í þá daga. Hún Jóka í Bif-
röst gaf okkur alltaf smá nammi
fyrir að gera við girðinguna henn-
ar hversu ómerkilegt sem það var.
Griindarbraut 18, Hekla. Mynd: PSJ.