Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Blaðsíða 12
10
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
um sem tilheyra Ósi og í land í
Stóru-Hrísey. Þangað hafði Jón
reyndar komið rúmum 20 árum
áður, þá í svartbakseggjatöku frá
Ósi. Við spásseruðum um eyjuna
en urðum að vara okkur- á svart-
baknum sem varði ungana sem
hímdu í hvannabeðum, ófleygir
og lítt sjálfbjarga. Seinna furðaði
afi Jóns sig á því af hverju við
hefðum ekki kippt nokkrum ung-
um með í matinn. Svartbakstaka
var ein af hlunnindum landeig-
enda hér áður fyrr og flest
erum við til í að smakka, en
eklti svartbak. Eftir klukku-
stundar dvöl í Stóru-Hrísey
héldum við áfram að Ósi þar
sem móttökunefnd var mætt
í fjörunni, enda fólkið okkar
búið að tvístíga með fdkinn
allan morguninn. I land
komum við kl. 13:00 og drif-
um okkur í Stykkishólm, nú
landleiðina, og fórum í sund.
þar var staðið í framkvæmdum
við íbúðarhúsið. Næst ætluðum
við að róa Brokeyjarvog milli
Brokeyjar og Norðureyjar en end-
uðum milli Norðureyjar og Vakt-
arhólma. Þar lentum við í “fjóta-
siglingu” því straumurinn þar á
milli var nokkuð öflugur. Því næst
sigldum við meðfram Norðurey
inn á Brokeyjarvog og virtum fyr-
ir okkur mannvirkin í Brokey.
Sagan segir að stórmenni hafi
byggt Brokey hér áður fyrr og t.d.
Eyjarnar
í mynni Hvammsfjarðar
Mánudaginn 19. júlí tókum við
lífinu með ró, en uppúr hádegi
daginn eftir héldum við af stað frá
Ósi og tókum stefnuna á eyjarnar
í mynni Hvammsfjarðar. Fyrsta
hindrunin var að fara yfir straum
sem hggur milli lands og
Straumeyjar (Straumseyjar) og
kallast Kolkistungur. I Laxdælu er
lýsing á því þegar Þorsteinn surtur
fórst þar ásamt öllum sínum
mönnum utan eins. Eftir á að
hyggja þá tókst okkur, óvart þó,
að fara skynsamlegustu leiðina í
Kolkistunginn, rerum síðan yfir
að Ólafsey og austur með henni.
Ólafsey er ein af stærri eyjum
Breiðafjarðar og var í byggð til
1944. Talsverður straumur var
við Ólafsey og við spáðum í
hvernig þetta væri í stórstreymi en
ekki í minnsta straum eins og var
þessa daga. Frá Ólafsey rerum við
að Suðurey og skoðuðum Jötun-
sporið sem er skólaga far í kletti
sem orðið hefur til vegna rofs úr
berggangi, en sagan segir að sé til-
komið vegna þess að tröllkarl hafi
tyllt þarna fæti á leið sinni út í
Brokey. Við ákváðum að taka land
f lítilli eyju austan Brokeyjar og
sáum þaðan til manns í timbur-
flutningum á lítilli skektu. Líklega
hefur hann verið á leið í Öxney
því seinna um daginn sáum við að
Góður endir á góðum degi.
er talið að fyrsti bóndinn í Brokey,
Jón Pétursson fæddur árið 1384,
hafi fyrstur Islendinga látið
hreinsa æðardún að einhverju
marki. Jón þessi varð einnig fræg-
ur fyrir að eignast um þrjátíu börn
með ýmsum konum. Annar ábú-
andi í Brokey, Vigfús Hjaltalín
sem bjó þar 1894-1952, lét byggja
kornmyllu við brúna yfir til
Norðureyjar og nýtti strauminn
milli eyjanna til að knýja hana
áfram.
Straumar hér og straumar þar
Afram rerum við um sund milli
Brokeyjar og Öxneyjar. Er við
komum að syðsta hluta Öxneyjar
lentum við í svokölluðum Bæn-
húsastraumi og náðum með erfið-
leikum að snúa við og fara í land í
Brokey. Þar biðum við og fylgd-
umst með krökkum að leik yfir í
Öxney. Allt í einu eins og hendi
væri veifað datt straumurinn nið-
ur og var ástæðan sú að sundið
hafði farið á þurrt að hluta og því
var ekkert rennsli lengur. Við gát-
um því haldið ferð okkar áfram.
Kominn var golukaldi og við end-
uðum í ævintýraferð þegar við
fórum í hina ýmsu strauma.
Verstur var straumur sem kallast
Stóri-Hjallseyingur og þurftum
við að sigla þvers og kruss við erf-
iðar aðstæður til þess að komast
fyrir hann. Við fórum einnig í
litla bróður hans en sáum síðan að
skynsamlegast væri að hætta þess-
ari vitleysu að sinni. Það var nota-
legt að sigla inn á lygna vík í
Ólafsey, þar sem við tjölduðum,
grilluðum lambakjöt (ekki úr eyj-
unum), og fórum svo dauðþreytt
að sofa.
Ferðalok
Við vöknuðum í blíðskapar-
veðri daginn eftir, tókum líf-
inu með ró og biðum eftir
liggjandanum. Tímann not-
uðum við til náttúruskoðunar,
fylgdumst með himbrima við
fæðuöflun og minki hrella
svartbaka í Lynghólma. Eftir
hádegi fórum við að hugsa
okkur til hreyfmgs, byrjuðum
á að fara yfir liggjandi Bratta-
straum að Gvendareyjum.
Leiðin lá milli Heimaeyjar,
Bæjarhólma og Háeyjar en þessi
leið var alveg frábær, sól, logn og
stórkostlegt umhverfi. Létum
okkur dreyma um hve gaman það
væri að eiga eyju með húsi og geta
verið þar í fríum. Allar heimsins
sólarlandaferðir geta ekki verið
betri en það. Áfram héldum við
að Geitareyjum, Stóru-Hrísey og
svo að Virkishólma en einmitt þar
trúlofuðum við okkur 7 árum
áður.
Kraldtarnir biðu okkar á bakka
Ósár og við enduðum ferðina
með því að sigla með þau á ánni.
Að lokum skoluðum við allan
búnaðinn og fengum okkur síðan
gott bað í ánni. Það var með
nokkrum trega sem við gengum
frá bátunum, vitandi það að við
færum ekki í fleiri kajakferðir
þetta árið. Nú er bara að skipu-
leggja næstu ferð.
Heimild: Arni Björnsson. Eyjar
í Snæfellsnes- og Dalasýslum. I
bókinni Breiðafjarðareyjar (Arbók
Ferðafélags íslands 1989).