Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Blaðsíða 42
40
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
Hrefna Kristjánsdóttir:
Hugleiðingar um Sjómannadaginn
Það er ætíð mikið um að vera á
Sjómannadeginum. Sjómenn eru
heiðraðir og þeir gera sér glaðan
dag með ýmsu móti. Breytingar
hafa orðið á dagskrá Sjómanna-
dagsins og ég tel að sú þróun sé
ekki að öllu leyti til góðs.
Aður fyrr var dagskrá
kempanna þéttskipuð,
þar sem þeir kepptu sín á
milli í ýmsum greinum
og sýndu okkur hinum
sem vinnum í landi,
hversu megnugar þessar
hetjur eru.
Styrkur þeirra í róðra-
keppni, snerpan í
koddaslagnum, fimin í
pokahlaupi eru fá atriði
sem gera þennan dag eft-
irminnilegan og skemmti-
legan. Þó svo að keppnin
hjá hetjunum sé í mesta
bróðerni þá er gaman að
sjá hversu kappsfullir þeir eru og
hve hart þeir leggja sig fram við að
sýna samheldna áhöfn. Rúsínan í
pylsuendanum á þessum ærsla-
fulla degi er sjómannaball þar sem
sigurvegarar eru krýndir með
pompi og prakt og við sjómanns-
konur fyllumst stolti yfir hetjun-
um okkar sem ganga hróðugir af
sviðinu með bros á vör.
Þrátt fyrir að Sjómannadagur-
inn hafi ætíð verið frábær, þá hef
ég vissar áhyggjur af þróun mála.
Færri og færri áhafnir taka þátt í
keppni. Má nú segja að dæmið
hafi algjörlega snúist við; í stað
þess að sjómennirnir komi sjó-
blautir heim, drullugir, með rifnar
skyrtur eftir átök dagsins, þá
koma þeir í mesta lagi með ísslett-
ur á jakkafötunum eftir að hafa
horft á aðra takast á og keppa, en
sumir af hinum nýju skemmti-
kröftum hafa aldrei migið í saltan
sjó. Ekki er ég að segja að ég sé á
móti því að þessar elskur hafi það
náðugt á þeirra eigin degi, síður
en svo. Eg veit að flestir þeirra
geta varla haldið aftur af
sér þegar þeir horfa á
landkrabba takast á við
gamlar þrautir þeirra og
þeim langar örugglega
mikið til að taka þátt.
Eg hvet sjómenn til að
koma aftur að skemmti-
atriðunum.
Ég er ánægð með að
búið er að færa Sjó-
mannahófið aftur á
sunnudag. Flestir sjó-
menn eiga frí daginn
eftir og landkrabbar
geta bara fengið sér frí
fram að hádegi á mánu-
deginum. Við þetta
mun sunnudagurinn nýtast meira
með fjölskyldunni í Sjómanna-
garðinum og enginn er þunnur
þann dag. Ég hvet sjómenn til að
láta skoðanir sínar í ljós um þessi
mál.
Sendum sjómönnum á
Snœfellsnesi ogfjölskyldum þeirra
heillaóskir í tilefhi / LÍFEYRISSJÓÐUR SJÓMANNA
Sjómannadagsins! \ Þverholti 14 - 105 Reykjavík Afgreiðslutími frá 8-16 Sími551 5100
■b^USTA í 60 ,
n *
HELGI PÉTURSSON
1935-1995
öencium sjómönnum
o/;/icu* /fC'S'fu kuecfjun
á JJómunnac/cujinn /