Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 52

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 52
50 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 Kristófer jónasson: Stóri róðurinn á Snæfellinu SH 197 Munnaðferðin Það var settur nýr dýptarmælir í bátinn en enginn mælir hafði ver- ið í honum áður. Til að þessi mælir sýndi lóðningu þurfti að slá af og keyra hæga ferð. Við byrjuðum í júnímánuði og fiskað var út af Jöklinum ca. 10- 20 sjómílur. Við lönduðum á ýmsum stöðum. I Krossavíkinni á Hellissandi, í Grundarfirði, í Hafnarfirði en minnst í Ólafsvík. Þeir sem voru á Snæfellinu voru Tryggvi Jónsson skipstjóri, Hösk- uldur Magnússon vélstjóri, Bjarni Arngrímsson matsveinn, Steinn Randversson, Kristján Alfonsson og undirritaður voru hásetar. Eitthvað var um að Snæfellið væri kallað barnaheimilið vegna þess hve ungir við vorum nema Tryggvi og Höskuldur. Mig minnir að við værum með rúm 40 reknet. Þá voru notaðir belgir úr segldúk með tjöru í og voru þeir blásnir upp með munnaðferðinni, vorum við allir tjörugir um kjaft- inn eftir blásturinn og hlógum við svo hver að öðrum því enginn vissi hvernig hann leit sjálfur út. Síld uppí klof Var nú byrjað á veiðunum og gekk allt ágætlega bæði vinnan og veiðin, en langt var oft í löndun- arhöfn eins og áður segir enda ganghraði bátsins ekki mikill. Við vorum búnir að róa nokkuð lengi þegar eina nóttina varð fljót- lega mjög þungt á belgjunum og fóru þeir að færast í kaf í öldurnar. Snæfell SH 197. Var þá óðar byrjað að draga netin og var mjög mikil síld í þeim sér- staklega í fyrri hluta trossunnar. Hækkaði nú óðum í bátnum lest- in fylltist og þegar einnig fór að hækka á dekkinu varð erfitt að draga netin eftir ganginum og hrista úr þeim þar sem við vorum á kafi í síld upp í klof. Þar kom að ekki komst meiri síld í bátinn án þess að renna í sjóinn aftur og voru þá 8 net ódregin. Voru þessi 8 net síðan hífð inn með bómunni og þeim staflað ofan á síldina íyrir framan stýrishúsið. Var haugurinn svo hár að rétt sá yfir hann út um stýrishúsglugg- ann. Það vildi okkur til happs að mesta síldin var í fyrri hlutanum næst bátnum en minnst í síðustu netin ,annars hefði trossan soldtið og við ekki náð henni upp. Ekki man ég hvað við vorum lengi að draga netin en við vorum það lengi að Vígiundur Jónsson, sem var með Fróða 36 tonna bát sem hann átti ásamt Snæfellinu, var að koma úr löndun frá Reykjavík tók á sig krók til að sjá Snæfellið með þennan farm en við vorum á leið til Hafnarfjarðar. Þegar þangað kom var síldin farin að síga dálítið og betra að standa í henni. Var þá farið að hrista út netun- um, en síldin nú mjög föst í þeim og rifnuðu þau mikið við það. Var nú sýnt að ekki yrði landað Það var seinnipart vetrar árið 1953 að Tryggvi Jónsson skip- stjóri spurði mig hvort ég vildi vera með sér á reknetum á Snæ- fellinu á komandi sumri. Ég hafði fengið vinnu um veturinn í Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur, en erfitt var að fá vinnu á þessum árum. Var þetta því freistandi til- boð, en einnig þurfti að hugsa um heyskapinn í sveitinni o.fl.. Sagði ég Tryggva því að óvíst væri hvort ég gæti þetta vegna heyskaparins og ég yrði að tala við pabba um þetta. Tryggvi sagði þá að það væri hægt að styðja eitthvað við það, og ég gæti fengið herbergi og fæði hjá sér þegar verið væri í landi. Ég ræddi síðan við pabba um þetta og ákváðum við að ég tæki þessu.

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.