Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 71

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 71
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 69 Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Ijósmóðir: Minningar frá Ólafsvík Það var í byrjun desember 1961, að ég steig út úr áætlunar- bílnum vestur í Ólafsvík. Komið var kvöld og skammdegismyrkrið huldi bæinn, sem var mér ókunn- ur með öllu. En hvaða erindi átti ég á þennan ókunnuga stað, ein á ferð með sængina mína í poka og eina ferðatöslcu. Allt á sér forsögu. Eg hafði lokið námi í ljósmóðurfræðum á haust- dögum 1960 og að námi loknu unnið á Fæðingardeild Landsspít- alans í eitt á , sem var góð starfs- reynsla inni á þessari ágætu stofn- un. Nú þegar ráðningartíma mín- um var lokið, hafði ég lofað að koma til Akureyrar 1. febrúar og leysa vinkonu mína og skólasystur af í barnsburðar fríi. Jafnframt var ég ráðin í sumarafleysingar á Fæð- ingardeild Landsspítalans næsta sumar. Ég var því á lausum kili um nokkurn tíma. Læknirinn í Ólafsvík hringdi til mín um þetta leyti og bauð mér starf umdæmisljósmóður þar vestra, en þá hafði ég ráðið mig í fyrr nefnd störf. Þegar ég fór svo að hugsa um þennan frítíma sem framundan var, datt mér í hug að gaman væri að fara vestur og spreyta mig á að taka á móti börnum í heimahúsum. Það varð síðan úr að ég fór vest- ur í byrjun desember og þarna var ég komin, þekkti engan nema hjónin Gunnar Bjarnason, frysti- hússtjóra, og Herdísi Ólafsdóttur, sem var frænka mín. Ég leitaði á náðir þeirra hjóna um húsnæði og var umsvifalaust tekin inn í fjöl- skylduna sem var glaðvær og góð. Ég auglýsti ekki komu mína, sótti ekki um umdæmið, var bara á eig- in vegum. Ég fór á fund læknisins, Arn- gríms Björnssonar, hann var orð- inn nokkuð aldraður, lífsreyndur og traustur maður. Honum þótti nú lítill fengur að mér svona skamman tíma, en tók mér vel, ég fann strax að hér var maður sem mér var óhætt að treysta. Þegar ég yfirgaf Ólafsvík uppgötvaði ég mér til undrunar að hann hafði alltaf komið fram við mig eins og jafningja, óreynda konu í ævin- týraleit. Hann afhenti mér töskuna hennar Hallveigar Jónsdóttur, sem hér var fædd og uppalin, og ljós- móðir á staðnum síðustu fimmtán ár. Síðar kynntist ég Hallveigu og starfaði með henni í eitt ár, en hún lést aðeins 56 ára gömul. Hún var góð kona í orðsins fyllstu merkingu. Ég hafði ekki mikið í höndun- um mér til halds og trausts, féklc þó deyfilyf hjá Arngrími sem hann bað mig að fara sparlega með. Hann sagðist vilja vera við- staddur fæðingarnar, ég var ánægð með það. Engin regluleg mæðra- skoðun var á staðnum, engar mæðraskrár fyrir hendi. Hallveig hafði litið eftir konum og hafði allan fróðleik um þau mál í sínum kolli, og nú var hún flutt burt úr Ólafsvík. En það var von á börn- um. Það var hávetur, sérfræðinga- hjálp og skurðstofa í órafjarlægð. Hvað var ég að ana úti? Nokkrar konur höfðu samband við mig og ég reyndi að aðlaga mig aðstæð- um, það hjálpaði mér að vera sjálf úr sveit og vera ekki vön því að hafa sérfræðingahjálp við húsvegg- inn. En ég var auðvitað upptekin af Landsspítalanum, þar sem var fyrst og síðast hugsað um áhætt- una og að koma í veg fyrir slys í fæðingu. 16 desember var ég sótt. Það kom á óvart að ég var sótt í bíl og þurfti ekki að burðast með töskuna dýrmætu. Bílstjórinn var Alexander Stefánsson, alþingis- maður, þeirra á Snæfellsnesi, systir hans var komin í fæðingu, en maður hennar var erlendis að sækja bát, Jón á Stapa. Konan var ein í húsinu þegar ég kom og hin rólegasta, byrjaði á að gefa mér kaffi. Ég spurði hvort hún hefði enga hjálparstúlku „Jú, jú, hún kemur þegar fæðingin verður af- staðin". Hér var nú ekki stressið, en ljósmóðirin var nú ekki jafn róleg og taldi betra að einhver væri til staðar í húsinu ef t.d þyrfti að hringja til læknis eða rétta okk- ur hjálparhönd. Hún Gestheiður gerði mér það til þægðar að kalla á stúlkuna. Ég var dálítið hissa á þeirri tiltrú sem konan sýndi mér, að ætla að hafa mig eina hjá sér, ég var þessu varla viðbúin, ég kom frá fæðingadeild þar sem skylda var að læknir væri við allar fæð- ingar og oft fjöldi aðstoðarfólks. Fæðingin gekk hratt og vel, aðeins of hratt því pilturinn viðbeins- brotnaði við fæðingu, var 17 merkur og fjallmyndarlegur. Að- eins tveim nóttum síðar var ég vakin af værum blundi, og ég hljóp út í nóttina með ungum manni, léttum á fæti, en það var ég líka. Við höfðum engan tíma til samræðna enda leiðin stutt. Ég hafði ekki hugmynd um hver var að fæða eða hvert ég var að hlaupa. Þarna var ung kona að fæða sitt fyrsta barn. Ég fékk upp- lýsingar frá móður hennar sem stóð hjá dóttur sinni á náttsloppn- um, að hún héti Jenný, væri búin að vera með verki um nóttina, en kvartaði ekki, og ætlaði að mæta í sína vinnu á morgun ef verkirnir liðu hjá. En nú var barnið alveg

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.