Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Blaðsíða 78
_76________________________________
Ferðin hefur tekið upp undir hálf-
tíma. Þegar ég stoppa bílinn og
ætla út, rennir Kristján á mig aug-
unum, kímir eins og honum ein-
um er lagið og segir: „Ingi við
Halldór Benediktsson.
gleymdum verkfærunum”.
Eg hef vissulega sterkar taugar
til þessa byggðarlags, var aðeins
19 ára þegar ég giftist þangað,
manndómsárin mótuðust vissu-
lega þar í höndunum á góðu fólki
og fögru umhverfi. Ég vil svo óska
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
til hamingju með Sjómannadag-
inn
Að lokum vil ég nefna þá vöru-
bílstjóra sem voru í Neshreppi
utan Ennis á þessum tíma:
Halldór Benediktsson, Ásbyrgi,
f. 6. maí 1920, d. 27. október
1993. Kallaður Dóri Bensa og átti
lengstan starfsaldur í okkar hópi.
Hann notaði ávallt númerið P-5 á
bílum sínum. Halldór var traustur
maður, sérstaklega snyrtilegur í
orði og athöfnum og voru bílar
hans til fyrirmyndar. Hann var
umboðsaðili fyrir Skeljung, ók
mikið fyrir Hraðfrystihús Hell-
issands og Skarðsvík. Hann var
með krana á bíl sínum sem hann
notaði mikið, Flutti til Reykjavík-
ur1979.
Gísli Ketilsson, Þórsbergi
(Gíslavillu), f. 24. desember 1915.
Hann var með P-214 á sínum bíl-
um. Góður maður við samborgara
sína og hefur gert mörgum mann-
inum greiða, m.a. seldi hann mér
fyrsta vörubílinn minn. Gísli var
fyrsti bíll hjá Kaupfélaginu og
Jökli. Einnig hafði hann umboð
fyrir Olíufélagið og snéri sér síðan
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
alfarið að þeirri starfsemi. Gísli lif-
ir nú í hárri elli í villu sinni sáttur
við lífið og tilveruna.
Tryggvi Eðvarðsson, Svanhóli, f.
12. febrúar 1917, d. 8. desember
1979. Var lengst af á Bensum með
númerið P-103. Skemmtilegur
maður og orðheppinn með af-
brigðum. Svo orðheppinn að
hann varð stundum hissa á sjálf-
um sér og sagði: „Nei strákar,
sagði ég þetta?” Tryggvi var fyrsti
bíll hjá Skarðsvík og ók einnig
fyrir frystihúsið. Tryggvi hafði það
fyrir sið í vegavinnu á Utnesvegi
að hann sturtaði ávallt hlassinu á
veginn eftir kennileitum t.d. við
Móðulækinn, Djúpadal, Hvarf-
brekkur, Saxhól, Litlu Hellu,
Garða, Arnarkletta o.s.frv., við
þessar brekkur og hinar beygjurn-
ar. Af honum lærði ég mest um
staðhætti á þessu svæði. Tryggvi
var lengi formaður sjómannadags-
ráðs á Hellissandi.
Kristjón G. Guðmundsson, bjó
í Móabæ og síðar í Háarifi 15, f.
9. mars 1908, d. 17. apríl 1991.
Kallaður Kiddi Bersi vegna þess
að hann bjó lengi í Beruvík. Hann
var síðast á Volvo og númerið á
honum var P-32. Kiddi Bersi var
dugnaðarforkur þegar í vinnu var
komið og lét sinn hlut ekki fyrir
neinum. Honum leiddist þegar
lítið var að gera og gat þá orðið
nokkuð þungur á brún en var
Tryggvi Eðvarðsson.
allra manna glaðastur í góðra vina
hópi og sagði gjarnan þegar hann
vildi komast að: „Á ég að segja
ykkur nokkuð?” Kiddi Bersi var
umboðsmaður fyrir Olís og ók
fiski m.a. fyrir Sigurð Magnússon
ofl. Hann fluttist til Reykjavíkur
þegar hann tók að dasast.
Kristinn Haraldsson, bjó lengst
af í Hárifi 9, f. 15. mars 1925, d.
15. janúar 1987. Kallaður Diddi
Halla, duglegur maður Diddi.
Best man ég eftir honum á rauð-
um Scanía P-508. Diddi átti
Kristinn Haraldsson.
trillubát fyrr á árum sem Farsæll
hét en var ávallt kallaður
Krummi. Hann réri þegar tæki-
færi gáfust frá akstri og var talinn
afar laginn og fiskinn á sjó. Einnig
stundaði hann töluvert beitningar.
Hann sá um akstur fyrir Saxham-
ar af einstakri natni, fiskverkun
Sigurðar Ágústssonar og fleiri.
Kristófer Snæbjörnsson, bjó á
Hellu, f. 6. maí 1918, d. 1. októ-
ber 1997. Kallaður Kiddi Snæ. Sá
lengst af um vöruflutninga milli
Reykjavíkur og Hellissands. Skrá-
setningarnúmerið á hans bílum
var P-142. Ákafamaður til vinnu
og lét þar ekki sinn hlut eftir
liggja. Var drenglundaður mjög
og ákaflega gott að ferðast með
honum. Kristófer snéri sér síðan
að almennum vörubílaakstri hin
síðari ár og stundaði þá m.a.
grjótflutninga í hafnargarða á ut-
anverðu Snæfellsnesi. Hann flutti
til Reykjavíkur þegar elli kerling
tók að kippa í hann.
Herlauf Clausen, bjó lengi í
Skuld, f. 7. ágúst 1926. Léttur
maður og kátur sem sá samferða-
menn sína oft í gamansömu ljósi.
Hafði númerið P-433 á bílum
sínum og ók mikið fyrir Hrað-
frystihús Hellissands og Jökul.
Fluttist til Reykjavíkur árið
1979 og stundaði m.a. vörubíla-