Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 5

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Blaðsíða 5
GUÐMUNDUR MARTEINSSON: Skógrækt og skyld /. AÐDRAGANDI Hugmyndin um útivistarsvæði fyrir Reyk- víkinga á þeim slóðum, sem síðar hlutu nafnið Heiðmörk, mun fyrst hafa komið fram á prenti í ársriti Skógræktarfélags íslands árið 1936, í grein eftir Hákon Bjarnason, er nefnist „Frá ferðum mínum sumarið 1935“. Hákon tók við embætti skógræktarstjóra 1. mars það ár, og ferðaðist á hestum þá um sum- arið um gjörvallt landið í byggð. Um miðjan júní brá hann sér 1 skoðunarferð í nágrenni Reykjavíkur, og segir svo í um- ræddri grein: „Hinn 16. júní reið ég upp fyrir Elliðavatn til þess að skoða þær kjarrleifar, sem enn eru utulir svonefndum Hjöllum og Löngu- brekkum. Þarna er töluvert af kjarri, en ekki er það mjög hávaxið. Sumstaðar var það jró mannhæð og mjög þétt. Að því er séð verð- ur, hefur skógurinn tekið allmiklum fram- förum á síðustu árum, og mun það aðal- lega því að þakka, að fjárbeit hefur mikið lagst niður á næstu bæjum. Kjarrið er mjög að breiðast út um hraunið, sem liggur fyr- ir austan brekkurnar, og er aðeins tíma- spurning hvenær það verður mestallt skógi vaxið . . . En frá Hjöllunum og alveg suður undir ICleifarvatn eru smá kjarrskikar og sumstaðar jafnvel allvíðlend skóglendi. Dag jrann, er ég var jrarna, var skógurinn nýsprunginn út, ljósgrænn á lit, en sólin hellti ylgeislum vorsins yfir landið. Var ein- kennilega fagurt um að litast þarna efra. Reykjavík og Hafnarfjörður munu vera aðaleigendur þessa landssvæðis, og væri vel, ef bæjarstjórnir þessara bæja sæju sér fært að gera einhverjar ráðstafanir til þess að vernda þessar skógarleifar, og reyna að koma þeim á legg. Væri mikill. fengur fyrir íbúa bæjanna að geta skroppið um helgar í fagurt skóg- störf á Heiðmörk lendi án þess að þurfa að verja til þess of miklum tíma og peningum . ..“ Tveim árum seinna, haustið 1938, var hug- myndin um útivistarsvæði Reykvíkinga austan- vert og sunnanvert við Elliðavatn, á landspild- um jarðanna Hólms, Elliðavatns og Vatns- enda, sett fram í erindi, er stjórn Skógræktar- félags íslands, undir forystu Árna G. Eylands, sendi bæjarráði Reykjavíkur. Er þar m. a. komist svo að orði: Segja má, að fyrirætlun um friðun Elliða- vatnslands, ásantt hluta af I-fólmshrauni, sé góð fyrirœtlun og mynclarleg, en að friðun og skipulögð notkun Elliðavatnslands, Hólms- hrauns og Vatnsendalands, til almenningsgagns, sé glœsileg fyrirœtlun og fullkomin. 1 erindinu er bent á ýmsa þá kosti, sem svæði þetta'býr yfir, og hvernig megi færa sér þá í nyt, en í lokin segir á þessa leið: „Þungamiðja málsins — Þjóðgarður Reykjavikur við Elliðavatn — er auðvitað, að því leyti, er nær til Skógræktarfélags Is- lands, sem leyfir sér að senda Bæjarráði Reykjavíkur þetta erindi, verndun sliógar- leifanna i nágrenni Elliðavatns og endur- reisn skóganna á hinu umrœdda svceði. Máli jressu var vel tekið, 'bæði af bæjarráði og í dagblöðum, en dráttur varð á framkvæmd- um, og átti heimsstyrjöldin, sem hófst 1939, sinn þátt í þvf. En stjórn Skógræktarfélags Islands fylgdi málinu eftir. Árið 1941 gaf Skógræktarfélag íslands út bækling, sem bar heitið FRIÐ- LAND REYKVÍKINGA OFAN ELLIÐA- VATNS, þar sem hvatt er til þess að fá um- rætt landssvæði friðað og gert að útivistar- svæði fyrir almenning, og skýrt frá frumkvæði Skógræktarfélagsins að ]>ví málefni. f bæklingi þessum er ýmis fróðleikur um þetta landssvæði ásamt yfirlitskorti. Rætt var um það manna á meðal, að þörf ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.