Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 7

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 7
Úr jaðri Undanfara. Ljósm.: Stefán Nikulásson 1974. sjón og framkvæmdir á HeiSmörk. Þá er þess getið í samningnum, að Heiðmörk skuli opin öllum almenningi og öllum frjálst að dvelja þar, gegn því, að þeir hlíti þeim reglum, sem settar yrðu um umgengni og umferð. Um leið og þessi samningur milli bæjar- stjórnar Reykjavíkur og Skógræktarfélags Reykjavíkur var gerður, gaf Skógræktarfélag Reykjavíkur út „Reglur um landnám og skóg- rækt á Heiðmörk“. Megininntak þeirra reglna eru ákvæði um úthlutun á spildum til einstakra félaga, stofnana og starfsmannahópa í Reykjavík, gegn því, að þessir aðilar, landnemar, skuldbindi sig til að gróðursetja trjáplöntur, græða land og hirða, samkvæmt fyrirmælum Skógræktarfélagsins. IV. „LANDNEMAR A HEIfíMÖRK" HEFJA SKÓGRÆKT Þegar lokið var samningsgerð milli bæjar- stjórnar Reykjavíkur og Skógræktarfélags ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFF.LAGS ÍSLANDS 1975 Reykjavikur og gefnar höfðu verið út „Reglur um landnám og skógrækt", lét stjórn Skóg- ræktarfélagsins boð út ganga á þá leið, að að- ilar, sem um ræðir í reglunum, mættu sækja um spildur til „landnáms og skógræktar á Heið- mörk“. Reyndist vera mikill áhugi fyrir þessu mál- efni hjá ýmsum félögum, og þegar á fyrsta vori, árið 1950, var úthlutað spildum til 29 félaga. Flestar voru spildurnar um 5 ha að stærð, en einstaka spildur stærri. Og það var hafist handa. Skógræktarfélagið úthlutaði plöntum til hinna ýmsu félaga (starfshópa). Flestir fengu starfshóparnir úthlutað 1500 plöntum, en nokkrir fengu stærri skammt. Plöntuframleiðsla félagsins (í Fossvogsstöð- inni) var skiljanlega enn af skornum skammti, bæði tegundafjöldi og heildarmagn, en þetta fyrsta vor almennrar þátttöku landnema á Heiðmiirk, var þó úthlutað rúmlega 50 þús- und plöntum, þar af voru um 44 þúsund plöntur upp aldar í Fossvogsstöðinni. Megnið af því var skógarfura (pinus silvestris), tveggja 5

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.