Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 32
sem þekur hæðir og ása í Garðahreppi og
e. t. v. einnig á Álftanesi.*) Um þetta skal
þó engan veginn fullyrt, en benda má á
eina staðreynd sem styður að minum dómi
tilgátuna um dyngju á áðurnefndum stað en
ltún er sú, að í Herdísarvíkurfjalli má sjá
fornt móbergslandslag, sem færst hefur í
kaf af hraunum, sem líta út fyrir að vera
dyngjuhraun og hljóta að vera komin af
svæðinu nálægt núverandi Bláfjöllum. Grá-
grýtisþekjan á Urðarfelli norður af Svörtu-
björgum ofan við Selvog á væntanlega rætur
að rekja til sömu eldstöðvar. Móbergið í
Herdísarvíkurfjalli er þá sennilega frá næst
síðustu ísöid, því að jafnaði má reikna með
að meiri háttar móbergsmyndanir merki ísöld
en hraun runnin á íslausu landi marki hlý-
skeið.
Utlit grágrýtisins er öllum kunnugt og
verður ekki út í það farið hér en vísað
til greinarkorns í Náttúrufræðingnum frá
árinu 1972 (Jónsson 1972C), en iþar má finna
nokkurn fróðleik um það. Þar sem borað hefur
verið gegnum grágrýtið hefur sums staðar kom-
ið í Ijós að undir því eru setlög, án efa mynduð
í vatni. Um útbreiðslu þeirra er ekki mikið vit-
að. Jökulberg kemur fyrir á 200 m dýpi undir
yfirborði við Rauðhóla, en um útbreiðslu þess
er heldur ekki vitað.
ísaldarminjar i Heiðmörk.
Hér að framan var að því vikið að jökla
hafi leyst af þessum landshluta fyrir um það
bil 10.000 árum eftir að landið hafði
verið jöklum hulið í um 60.000 ár að þvi
er talið er. Á því tímabili hefur eldvirkni
mikil átt sér stað undir ísnum. Þá varð til
*) Eftir að þetta var ritað hef ég í dagbók
Guðmundar G. Bárðarsonar frá árinu 1931, sem
dr. Finnur Guðmundsson hefur góðfúslega lánað
mér, fundið að Guðmundur hefur talið að grá-
grýtisdyngja væri suðaustur af Grindaskörðum
og nefnt gíginn Stórkonugíg. Lætur hann að
því liggja, að þaðan geti grágrýtið kringum
Hafnarfjörð verið komið.
30
móbergsmyndun sú sem yngst er á Reykjanes-
skaga og gera má ráð fyrir að hylji eldstöðv-
ar, sem virkar voru fyrir síðustu ísöld og áður
er að vikið.
Ein af þeim ísaldarminjum í Heiðmörk, sem
maður hvað fyrst veitir athygli eru fágað-
ar grágrýtisklappir, hvalbök. Að norðan eða
öllu heldur norðvestan eru klappirnar oft í
bröttum stöllum og víða má sjá björg og
stundum heila stuðla, sem ísinn hefur rifið
úr klöppunum en ekki megnað að færa nema
fáa metra og stundum hefur hann aðeins náð
að losa lítillega um stuðlana en ekki fært þá
úr stað. í gagnstæða átt er halli klappanna
aflíðandi. Sýnir þetta straumstefnu jökulsins
en oft má marka hana enn betur af rispum
eða rákum á bergfletinum. Þessar rákir eru
eftir steina, sem voru í botni jökulsins og ristu
þessar rúnir í bergið um leið og ísinn skreið
fram. f Heiðmörk er stefna rákanna norðvest-
læg og sýnir það straumstefnu jökulsins á loka-
stigi ísaldar. Einstaka sinnum sér maður á
klöppunum steina þá sem gert hafa rákirnar,
endar þá rákin undir steininum. Þetta má sjá
á a.m.k. tveim stöðum í ofanverðri Heiðmörk
en ekki skal það nánar til tekið hér. Stórir
steinar liggja víða á þessum íssorfnu klöppum
og eru slík björg nefnd grettistök. Þau eru
allvíða í Heiðmörk. Stundum finnur mað-
ur hálfmána-formaðar grópir, sem liggja nær
hornrétt í stefnu ísrákanna. Þær eru nefndar
jökulgrópir (Einarsson 1968). Þær eru til í
Heiðmörk en ekki mjög venjulegar.
Þegar jökullinn bráðnar verður eftir það
efni sem í ísnum var bæði í botni jökulsins,
inni í ísnum og á yfirborði hans. Þetta myndar
Jtað, sem venjulega er nefnt jökulurðir en ekki
er það ævinlega réttnefni og væri jökulset oft
nær sanni og svo er víða og jafnvel víðast í
Heiðmörk utan þess, sem þegar hefur verið
nefnt. Jökulurðin er yfirleitt ólagskipt og sam-
anstendur af möl, sandi og leir ásamt steinum
í öllum stærðum. Oft eru steinarnir rákaðir og
mjög oft yúllaðir og bera þess merki að hafa
rúllast í vatni en mikill vatnagangur hefur
að sjálfsögðu verið í jöklinum og við hann á
lokastigi tilveru hans, er því eðlilegt að allt sé
í hrærigraut á slíkum stöðum bæði jökulurðir
og vatnaset. Myndanir af þessu tagi eru und-
irstaða gróðurs í Heiðmörk. Víða er þar jökul-
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975