Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 36

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 36
A Hjallabrún, séð til norðurs. Dœmi um mis- gengi. Ljósm.: Stefán Nikulásson 1975. genginu áður en hraunið náði framrás norður með Vífilsstaðahlíð. Að hreyfingarnar hafa haldið áfram síðan er fullljóst af því að Búr- fellshraun er brotið um þvert á fleiri stöðum og misgengi í því a. m. k. 12—15 m samtals (Jónsson 1965). Engum efa er það hundið að hreyfingar eru stöðugt á þessu svæði enda hlýtur hver sá sem um það gengur að gera sér grein fyrir því. Samkvæmt mjög nákvæmum mælingum Eysteins Tryggvasonar (1968) nem- ur höggunin að jafnaði um 2.8 mm á ári sé um jafna höggun (misgengi) að ræða, sem þó naumast er trúlegt. Hinar löngu grasi grónu lautir, sem svo mjög einkenna þennan hluta Heiðmerkur eru sprungur og misgengi þar sem jarðvegur hefur sigið niður í sprungurnar. Þar fær gróðurinn skjól og jarðvegurinn þykknar ör- ar en annars staðar. Sprungurnar valda hins veg- ar því að vatn nemur ekki staðar á yfirborði en hverfur fljótlega niður í sprungurnar. Grunnvatn kemur því ekki fram i Heiðmörk sjálfri nema í Myllulæknum, Gvendarbrunn- um og við Silungapoll. Uppspretturnar á þess- um stöðum eru á mjög áberandi hátt í tengsl- um við sprungur og misgengi. Nokkur hluti þessa mikla sprungukerfis er nú án efa hulinn hraunum, enda má víða sjá misgengi hverfa inn undir hraun í Heið- mörk. Að sprungurnar sjást ekki í hraun- unum austast í Heiðmörk sýnir að þau eru ung. Höggunin er það hægfara að hún hef- ur ennþá ekki náð að brjóta þau svo að sýni- legt sé á yfirborði. Geta má þess að vitað er um sýnilegt misgengi í Leitahrauni. Það virðist því mega ætla að yngstu Hólmshraun- in séu verulega yngri en það. Það yngsta þeirra eða jafnvel tvö þeirra yngstu gætu verið frá sögulegum tíma. Summary Geological descriplion of Heiðmörk. Heiðmörk is characterised geologically by the wide-spread faulting and recent lava fields. These two phenomena have been most im- portant in forming the landscape. The area was first described in 1924 (Keil- hack 1925) and since has been intensively sur- veyed (Tryggvason & Jónsson 1958, Jónsson 1965, 1972). Doleritic basalts form the bedrock. They most likely originated during the last Inter- glacial from craters west of Bláfjöll. Be- low these can be found tuffs, tillites and lacus- trine deposits formed during preceding periods. The area shows clear signs of glaciation, es- pecially glacially polished rocks often showing 34 ÁRSRIT SKÓGR/EKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.