Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 43

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 43
Myllulœkjartjörn. gamburmosi. Lengi framan af sjást aðeins smábrúskar og flekkir þessara plantna á stangli í hrauninu, en eftir því sem árin líSa verða þeir þéttari og þéttari og að lokum klæðist hraunið svo til samfelldri gamburmosabreiðu en upp úr henni standa hraunnibbur með flétt- um á víð og dreif. Neðsta mosalagið deyr smám saman og rotnar og breytist í jarðveg, en áfok hjálpar til við jarðvegsmyndunina. Ýmsar fleiri mosategundir vaxa í mosaþemb- unni, en gamburmosans gætir langmest. Eftir því sem jarðvegur myndast skapast vaxt- armöguleikar fyrir blómplöntur sem setjast nú að í mosaþembunni í vaxandi mæli. Fyrstar á vettvang eru oftast krækilyng, blávingull, móa- sef, axhæra og fleiri tegundir, sem vaxa í fyrstu dreift en verða smám saman þéttari því mos- inn stenst ekki samkeppnina við þær. í hraun- unum í Heiðmörk ber mest á lyng- eða heiða- gróðri, mólendi eins og það er oftast kallað, en minna ber á graslendi og jurtastóði ]dó það sé einnig til og þá aðallega í lautum og bollum. Gamburmosinn hverfur að mestu en ýmsar aðr- Ljósm.: Stefán Nikulásson 1975. ar mosategundir koma í þeirra stað og gætir oft allmikið, einkum innan um lyngið. Víðitegundir og birki berast nú einnig að og eftir því sem jarðvegur eykst dafnar birkið betur og að lokum myndast kjarr eða skógur. Þessi rás plöntusamfélaga, þegar eitt samfé- lagið tekur við af öðru og lýkur loks með myndun birkiskógar, tekur mjög mislangan tíma eftir staðháttum, en víðast hvar fleiri ald- ir eða jafnvel þúsundir ára. Benda má á það, að gróður í Kapelluhrauni sunnan Hafnar- fjarðar er ekki kominn öllu lengra en á gamb- urmosastigið, en það hraun er þó að minnsta kosti eitt þúsund ára gamalt. Aftur á móti eru hraun kringum Fleklu, þar sem áfokið er marg- falt meira, miklu fljótari að gróa upp og gróð- ur í 60—100 ára gömlum hraunum þar er þegar kominn á gamburmosastig. Mólendið í Heiðmörk er víðast hvar vaxið krækilyngi, beitilyngi og sortulyngi sem aðal- tegundum, en bláberjalyng er nokkuð víða og aðalbláberjalyng vex á stöku stað í lautum en gætir þó hvergi að neinu marki. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975 4J

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.