Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 44
Allmikið er um víði í mólendinu, aðallega
grasvíði, grávíði og loðvíði, en stórar og fal-
legar gulvíðibreiður eru þó nokkuð víða.
Kjarrbrekkurnar suðaustan undir Hjöllum
eru mjög fagrar og gróskulegar, bæði vöxtu-
legar ltirkihríslur og blómlegur undirgróður
þar sem m. a. vaxa geithvönn og jarðarber.
Þessar brekkur ætti endilega að varðveita eins
og þær eru og alls ekki að planta þar trjám
heldur leyfa birkinu að breiðast þar út af
sjálfsdáðum hér eftir sem hingað til.
Megnið af Heiðmörk er frekar þurrt land,
þó úrkoman sé allmikil. Uppspretturnar sem
mynda Myllulækinn, Myllutjörnin og mýrin
umhverfis auka jtví mjög á fjölbreytni náttúr-
unnar hér. Af öllum þeim tegundum blóm-
plantna og byrkninga, sem ég hef fundið í
Heiðmörk eru nærri 40, eða fjórði hlutinn,
sem aðallega eða eingöngu vaxa á þessu Myllu-
tjarnarsvæði. Væri því mikils misst ef nokkru
yrði raskað hér, bæði hvað snertir gróður og
þá ekki síður fuglalíf, sem er mjög auðugt
hér. Myllutjörnin og mýrin er því ein helsta
perla Heiðmerkur og ber því fyrir alla muni
að varðveita þetta votlendi eins ósnortið og
framast er unnt.
42
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975