Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 46

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 46
tF 1 ^ðbgat)iy'' úr því. Útfallið úr Elliðavatni er rétt að telja hér með vegna vetrarsetufugla, sem þar er oft að finna. Myllulækurinn var fyrr nefndur. Ilonum nokkru norðar rennur lindarlækur um vot- lendismóa til Elliðavatns. 7. Mýrar: Mýrarsvæðin er'u þegar talin í sambandi við vötn og ár. 8. Tún eru út frá bæjunum að Vatnsenda og Elliðavatni og hin síðari ár hafa orðið til ræktunarsvæði með görðum og grasflötum í kringum sumarbústaði, sem er víða að finna en þó hið neðra við vötnin, þó dreifst hafi þeir upp um Vatnsendahlíð og Vatnsendaheiði. Grasteyginga, mela og móa er að finna inni í brununum eða í vikum milli þeirra og á sum- um stöðum eru nokkuð stór svæði, t. d. Elliða- vatnsheiðin, þar sem brunar hafa ekki náð að leggja undir sig liolt og hæðardrög. A þessum svæðum eru kjarrlendi mest og samfelldust. 9. Hraunin í allri sinni margbreyttu lögun og gerð, djúpum hraunbollum sumum grasigrón- um, háum hraunsnösum og nefjum, sprungn- um hraunhólum og mosagrónum brunarimum. A sumum þessum hraunflákum hefur smjör- víðir og birki náð fótfestu ásamt sortulyngi, krækiberjalyngi og skriðulum blómjurtum. Eg tel Heiðmörkina búa yfir 9 gerðum kjör- lenda fyrir fugla. Ég hefi eigi enn talið hið nýja landnám barrtrjáa, sem hófst fyrir 25 ár- um en setur þegar svip á Mörkina ekki síst á vetrum og um fartíma fugla að vorlagi. Við sem höfum þekkt Reykjavík nær trjávana og lítum til fugla, höfum gjörla séð hversu áhrif trjáræktar hafa orðið á fuglalíf borgarinnar og 44 án efa mun sömu áhrifa gæta hið efra í Mörk- inni. ☆ Ekki get ég sagt að ég hafi stundað fugla- rannsóknir í Heiðmörk. Gönguferðir hefi ég átt margar inn á svæðið á öllum árstímum og unnið þar að skógrækt nokkrar stundir árlega í 25 ár. Hugleiðingar mínar eru reistar á því, sem fyrir augun hefur borið af fuglum á göng- um mínum. ☆ Það er komið fram að lokum þorra. Stór- liríðar hafa hamast. Fannir í lautum. Vötn lögð og ár falla milli skara. Feykt hefur snjó af holtum og móum í Elliðavatnsheiði. Upp úr sinustráum móanna flögrar hópur snjótitt- linga með skvaldrandi seim. I vari við kjarr fyrir norðaustanátt eru rjúpubæli. Lítil ís- skænd ‘ fylgsni með hrúgu af rjúpnasaur við opið undan vindinum og snjódriftinni. Vængja- för í mjöllinni og þarna fara nokkrar á rykk- flugi. Dökk nef, stél og svartar rákir flug- fjaðra skera sig úr lit fjaðurhams og fannar. Niður við Elliðavatnsbæinn flögrar upp skóg- arþröstur og er ég nálgast Myllulækinn baksa tvö ferlíki til flugs, langir fætur langt aftur fyrir stél og langt nef á essbeygðum hálsi skagar fram eins og burtreiðarstöng. Gráhegrar! í fjörum sunnan Staðar í Grindavík hefðu þeir ekki komið á óvart en hér vekja jteir furðu. Þrír hrafnar fljúga að þeim. Einn veltir sér af undrun eða ánægju yfir tilbreytingunni í vetrarfábreytninni. Út af Þingnesi er stór vök. I henni standa á höfði fjórar álftir en uppi á skörinni stendur ein á öðrum fæti með höfuð undir væng. Þrjár eru gráar. Ungar frá sumrinu. Dökkar saur- hrúgur álftanna eru við skörina. Hjá þeim standa tvær krokulegar veiðibjöllur. Vestan vatnsins er löng vök upp frá útfall- inu með landinu. Hvað er þetta, fuglar í vök- inni? Sól nær að skína og það er eins og hún veki þá til leiks eða sóldýrkunar. En það busl. Þetta eru tvær tegundir. Þrjár hvinendur. Tveir steggir og ein kolla. Hvílík bakköst með hausn- um hjá steggjunum. Halda þeir þó sól skíni að komin sé mökunartíð? Þetta eru ameríkan- ar, náskyldir húsöndinni, sem heldur sig eink- ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.