Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 55

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Page 55
Rostrup frá Möðruvöllum, Hálsskógi og Húsa- fellsskógi. Þeir sem síðar hafa safnað hér sveppum hafa ekki fundið hann, heldur aðeins St. purpureum, en þessar tegundir geta ver- ið mjög líkar, og því sennilegt, að eitthvað af fyrrnefndum fundum eigi við þá tegund. Sjálfur hallast ég að því, að báðar tegundirnar séu hér til, enda hafa nokkur eintök, sem ég hef safnað f Vaglaskógi, Hallormsstaðarskógi og Lystigarðinum á Akureyri ýmis greinileg hirsutum-e.mV.enm, án þess þó að vera óyggj- andi sú tegund. Talið er að St. hirsutum geti valdið fúa í særðum trjám og viði af lauftrjám. Ekki er vitað um skaða af völdum hans hér. Stereum purpureum (Pers. ex Fr.) Fr. (fjólu- skinni, purpuraskinni) (= Chondrostereum purpureum (Pers. ex Fr.) Pouz. = St. corli- cosum (Fr.) Fr.). Mjög líkur undanfarandi tegund, nema ekki eins leðurkenndur (oft talinn fremur brjóskkenndur), börðin þéttari og meira þak- lögð, hárin á efra borðinu samfelldari, vatt- kennd, ljósgrá eða brúnleit, með ógreinileg- um beltum. Gróbeðurinn sléttur, fjólublár- purpurarauður á ungum eintökum, en gulbrúnn eða bleikur á gömlum. Gróin 6—10 ^ á lengd, og 3—5 n á breidd. Eins og undanfarandi teg- und vex St. purpureum hér eingöngu á stubb- um, bæði á barkfletinum (hliðunum) og á við- ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1<I75 Slereum purpureum (pur- puraskinni) á birkistubb í Vaglaskógi, sumarið 1961. Ljósm.: H. Hg. arfletinum að ofan. Hann er oft mjög áber- andi, t. d. í Vaglaskógi, en þar mun hann hafa fundist fyrst, eða um aldamótin af Ólafi Dav- íðssyni (Rostrup 1903 undir nafninu St. „vorti- cosum"), og síðan hafa flestir sveppamenn fundið hann þar. Hann hefur einnig fundist í Fellsskógi í Kinn í S.-Þing., og líklega einnig á Hallormsstað (H. Hg. 1960), og í görðum á Akureyri, en ekki er vitað um hann á Suður- eða Vesturlandi. St. purpureum er einkum jiekktur l’yrir að valda svonefndu „silfurgliti“ á blöðum ýmissa trjátegunda og runna, en það lýsir sér þannig, að blöðin gulna ofurlítið en fá síðan sérkenni- legt málmkennt glit, sem minnir á blý eða tilfur. Stafar þetta af því að húðlagið lyftist f’rá frumunum sem undir eru og innihalda grænukornin, svo fram kemur ljósbrot í blöð- unum. Tré sem hafa þennan sjúkdóm eru oftast m. e. m. brúnlituð inni í bolnum, af efnaskiptum sveppsins, án þess þó að um sé að ræða fúa í jreim. Stereum sanguinolentum (Alb. & Schw. ex Fr.) Fr. (dreyraskinni). Myndar þunnar, brúnleitar skorpur eða smá- börð á stubbum og stofnum af barrtrjám. Börð- in brún eða grábrún á efra borði, með aðlæg- um hárum, sem oft mynda belti. Gróbeðurinn sléttur, grágulur-gulbrúnn eða brúnn, litast 53

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.