Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Qupperneq 62
Minnst látinna skógræktarmanna
Asgeir L. Jónsson
Ásgeir Lárus Jónsson var fæddur 2. nóv-
ember árið 1894 að Þingeyrum, A.-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans voru Jón Ásgeirsson
bóndi á Þingeyrum og Guðbjöfg Árnadóttir.
Asgeir L. Jónsson
Leið Ásgeirs lá, eins og margra bændasona
þar nyrðra, í Bændaskólann á Hólum, því um
fátt annað var að velja fyrir unga menn, er
vildu leita sér menntunar á þeim tímum. Frá
bændaskólanum lauk Ásgeir prófi árið 1914,
aðeins tvítugur að aldri. En hugur hans stóð
til frekara náms og fór hann því til Danmerk-
ur og kynnti sér starfsemi Heiðafélagsins og
síðar til Þýskalands, þar sem hann lauk prófi
í vatnsvirkjafræði við Die Kulturbauschule zu
Suderburg árið 1922.
Þegar Ásgeir kom heim að loknu námi réðst
hann til verkfræðistarfa við Flóaáveituna og
vann við hana fram til ársins 1928. Það ár
ræðst hann sem starfsmaður til Búnaðarfélags
Islands. Hjá búnaðarfélaginu vann hann sem
ráðunautur við landmælingar, áveitur og land-
þurrkun og annað það sem að vatnsvirkjun
laut og skrifaði margar greinar varðandi þessi
60
mál í innlend og erlend tímarit. Ráðunauts-
starfið var lians aðalstarf, en auk þess gegtidi
hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir landbún-
aðinn, sem of langt mál væri að telja upp hér.
Ekki er mér kunnugt um hvað vakti áhuga
Asgeirs á íslenskum skógræktarmálum, en tel
sennilegt að kynni hans af störfum danska
Heiðafélagsins og samstarf við Sigurð Sigurðs-
son búnaðarmálastjóra hafi ráðið þar mestu
um. Árið 1930 cr Skógræktarfélag Islands
stofnað á Þingvöllum í sambandi við Alþingis-
hátíðina og hafði Sigurður búnaðarmálastjóri
forgöngu um stofnun félagsins. Til undirbún-
ings félagsstofnunar var sett á laggirnar nefnd
og átti Ásgeir sæti í henni og á stofnfundi var
hann kosinn í varastjórn félagsins, en í vara-
stjórn þess sat hann allt til ársins 1946.
Árið 1932 ritar hann grein í Ársrit félagsins,
þar sem hann hvetur landsmenn til að forða
Bæjarstaðaskógi frá tortímingu, en skógurinn
var þá kominn að fallanda fæti sakir áníðslu.
Ásgeir átti því drjúgan þátt í að friðun Bæjar-
staðaskógar varð að veruleika.
Þeir, sem kvnntust Ásgeiri, létu af dugnaði
hans og samviskusemi í starfi og ratvísi lians
á að finna sem besta lausn og réttasta á hverju
jrví máli sem horfði til heilla.
Asgeir lést í Reykjavík þann 13. apríl á
fyrra ári. Sn. Sig.
Giiðbranclur Magnússon
Guðbrandur var fæddur 15. febr. 1887 að
Hömrum í Mýrahreppi, A.-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hans voru ]>au hjónin Magnús Sig-
urðsson, síðar kenndur við Foss í Seyðisfirði,
og Hallfríður Brandsdóttir, prests í Einholti
og síðar á Stað í Hrútafirði.
Guðbrandur, sem var prentari að iðn, hóf
fyrst nám í Prentsmiðju Austurlands, 1901 til
1904, en hún var rekin af Skapta Jósefssyni rit-
stjóra Austra. Síðan lá leið hans til Akureyrar,
]>ar sem hann dvaldi í tæpt ár og starfaði við
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉI.AGS ÍSLANDS 1<J75