Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Side 71
löngum verið athvarf ferðafólks á Þingvöllum
þegar norðannepja er. Þá er leitað þangað í
skjólið til að matast eða drekka kaffi. Samt hef-
ur umgengni um hann verið furðu góð.
Fljótsdalsáœtlun
Alls var plantað 45.800 lerkiplöntum í girð-
ingar á 5 bæjum, og er það svipað og árið
áður. Samkvæmt skýrslum eru nú komnar niður
röskar 125.000 plöntur samkvæmt áætluninni, og
er ]tað allmiklu minna en vonir stóðu til í
upphafi. Ástæðan til að verki þessu miðar
hægt er sú, að bænclur í Fljótsdal hafa ekki
talið sig geta lagt fram þá vinnu, sem búist var
við í upphafi. Ef ekki raknar úr verður ekki
hjá því komist að ráða utansveitarfólk til að
ln aða verkinu.
Plöntunarkostnaður á þessu ári var talinn kr.
3.40 á hverja plöntu en var kr. 2.00 árið áður.
Ýmislegt
Umferð ferðafólks í skóglendunum vex með
hverju ári. Engin fjárveiting hefur enn fengist
til að greiða götu ferðamanna á þessum stöð-
um og hefur þó um slíkt verið beðið í meira
en tíu ár samfleytt. Mestur er ferðamanna-
straumurinn í Þórsmörk frá því snemma vors og
fram á jólaföstu. Sakir þess að ekkert fé var til
þess að sinna þörfum ferðafólks var Þórsmörk
ekki hreinsuð framan af sumri. Hrannaðist þá
upp rusl og ójrverri, sem ferðamenn höfðu
eftir skilið, svo að flestum ofbauð þegar kom að
hvítasunnu. Sýndi þetta dæmi svart á hvítu
hvað Skógrækt ríkisins hefur haft mikið erfiði
af gestum sínum án nokkurs greiða í staðinn og
oft lítils þakklætis. Því ekki skorti umkvart-
anir og umvandanir í blöð.
Mikið var um ferðafólk í Vaglaskógi að
vanda. Þar var lögð vatnslögn fyrir skógar-
gesti í Stórarjóður, sem er að verða aðaltjald-
stæðið. Sumarskemmtanir voru engar í skóg-
inum né heldur á Hallormsstað og var það til
mikils léttis fyrir starfsmenn Skógræktar ríkis-
ins. Þá var og mikil umferð um Þjórsárdal
og Ásbyrgi, en á báðum þessum stöðurn voru
umsjónarmenn. I Ásbyrgi var útiskemmtun
Héraðssambands Norður-Þingeyinga í júlí að
vanda. Þótt Ásbyrgi sé einkennilegur og eft-
irsóknarverður staður fyrir ferðamenn, þá er
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFKLAGS ÍSLANDS 1975
skortur á góðu og tæru vatni í Byrginu, og af
þeim sökum er það óheppilegt útivistarsvæði.
Þá eru og vandkvæði á frárennsli, þannig að
tjaldvist ætti helst ekki að leyfast þar.
í júlíbyrjun kornu hingað til lands skóg-
stjórar Norðurlanda, flestir með konur sínar,
og dvöldu hér á landi í 10 daga. Það voru
Antero Pilia og frú Elísabeth frá Finnlandi,
Frederik Ebeling og frú Inger frá Svíþjóð,
Hakon Frölund og frú Else frá Danmörku,
Hans K. Seip og frú Anne Marie frá Noregi
ásamt Jens Aure forstjóra norsku ríkisskóg-
anna. En Folke Rydbo, forstjóri sænsku rík-
isskóganna átti ekki heimangengt og var því
ekki með í förinni. Skógstjórarnir og konur
þeirra gistu flest eldri skóglendi hér á landi og
sáu ýmislegt af því, sem síðar hefur verið tek-
ið fyrir. Töldu þeir sig hafa haft gaman af
ferðinni og séð ótal margt, sem kom þeim mjög
á óvart og var ólíkt því, sem þeir hafa fyrir
augum í heimabyggðum sínum. Meðal annars
sendi Frederik Ebeling ritstjóra og blaðaljós-
myndara sænska skógræktarblaðsins Domiin-
posten hingað til lands vorið 1974 til að afla
frekari upplýsinga um sitthvað, en um það
verður fjallað nánar í næstu skýrslu.
Þá komu hingað aðrir skógfræðingar frá
Norðurlöndum þetta sumar, Arnold Albáck frá
Luleá í Svíþjóð, Birgir Strömsöe, fylkisskóg-
stjóri í Elverunt og nokkrir héraðsskógmeistarar.
Þess má geta, að 9. skiptiferðin til skóg-
plöntunar var farin frá 2.—15. ágúst milli
Noregs og íslands á vegum Skógræktarfélags
Islands, en því er þess getið, að starfsmenn
Skógræktar ríkisins sáu um mestalla fyrir-
greiðslu hér og lögðu til fararstjóra til Noregs,
þá Garðar Jónsson og Gunnar Finnbogason.
Norðmennirnir dvöldu aðallega í Haukadal
og á Hallormsstað og unnu að gróðursetningu
á báðurn stöðunum.
Að endingu skal þess getið, að sumarið 1972
hófst athugun á útbreiðslu og gæðum skóglenda
um land allt og var þessari könnun lokið síð-
sumars 1973. Haukur Jörundsson fyrrum
skólastjóri vann aðallega að þessu verki ásamt
aðstoðarmönnum. Árangur þessara athugana
og mælinga er nú kontinn á spjaldskrá og
kortaskissur. Hefur lauslega verið farið yfir þær,
en nákvæm úrvinnsla fer fram á næstunni. Þá
voru og gerðar athuganir á vexti ýmissa trjá-
69