Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1975, Qupperneq 76
umhirðu plantna á árinu 1973. Hafa útgjöld
vegna umhirðu aðeins numið 7% Iteildarkostn-
aðar við gróðursetningu. Til fróðleiks skal
þess getið að í Noregi og Svíþjóð er talið lág-
mark, að útgjöld við umhirðu sé allt að i/j
heildarkostnaðar. Gera má ráð fyrir, að síst sé
minni þörf fyrir þessi störf hér á landi, alla-
vega á þeim stöðum, þar sem vaxtartregðu
gætir hjá plöntum, eða þar sem vinna þarf
að illgresiseyðingu. Því er augljóst, að auka
þarf umhirðu allverulega, en til þess að veru-
lega sjáist árangur þess, álít ég að nauðsyn-
legt sé að vinna að því skipulega t. d. með
hjálp vinnuflokka.
Tekjur og útgjöld 1973
Sé litið á heildarútgjöld skógræktarfélag-
anna á árinu 1973 kemur í Ijós að þau eru í
stórum dráttum þessi, að undanteknu Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur og Skógræktarfélagi
íslands:
Til plöntukaupa var varið tæpum 1100 þús.
krónum og greidd vinna við gróðursetningu
nam kr. 570 þús. Til umhirðu var varið 140
þús. króna, eins og áður var getið. Til nýrra
girðinga og viðhalds fóru tæpar 900 þús.
krónur. Ymis kostnaður vegna framkvæmda í
sambandi við gróðursetningarsvæði nam röskum
1.5 millj. króna. Þá varð félagskostnaður kr.
360 þús, og annar kostnaður s.s. afborganir af
skuldum o. fl. kr. 950 þúsund. Gjöld urðu því
alls röskar 6.5 millj. króna.
Helstu tekjur félaganna voru þessar: Ríkis-
stvrkur nam sömu upphæð og árið 1971 kr.
1750 þús. Sýslustyrkir hækkuðu úr kr. 145 þús.
í kr. 251 þúsund. Eins og að undanförnu veitti
Skagafjarðarsýsla hæstan styrk, kr. 60 þús, en
á eftir henni fylgdu Eyjafjarðarsýsla og Borg-
arfjarðar- og Mýrasýslur. Stvrkir bæjar- og
sveitarfélaga hækkuðu allverulega á árinu og
má e. t. v. rekja þá hækkun að nokkru
til aukinnar unglingavinnu og annarra fram-
laga í sambandi við útivistarsvæði. Hækkuðu
styrkir bæjar- og sveitarfélaga tir kr. 816 þús-
und í kr. 1.555 þús., og munar þar mest um
framlög Akureyrar og ICópavogs. Tekjur af
plöntusölu, utan gróðrarstöðva, voru kr. 255
þús., og aðrar tekjur s.s. af hlunnindum, gjöfum
o. fl. námu röskri 1.5 millj. kr. Þá námu fram-
lög Landgræðslusjóðs til félaganna röskum 600
74
þús. krónum. Við þetta bætast svo tekjur af
sjálfboðavinnu, en sjálfboðaliðar lögðu fram
990 dagsverk við ýmis störf, sem gera a.m.k. 200
þús. krónur.
l.eiðbeiningar og frœðsla
Þótt töluvert sé unnið að leiðbeiningum
og fræðslu á vegum skógræktarfélaganna, s.s.
með leiðbeiningum um skógræktarstörf,
fræðslu á fundum og útgáfu ársrits, þá eru
menn sammála um að brýnt sé að auka þessa
þætti félagsstarfsins. Að sjálfsögðu má um það
deila á hvað skuli leggja mesta áherslu. Ég hygg
að almennar leiðbeiningar um skógræktar-
störfin séu einna mest aðkallandi, ekki síst sak-
ir þess að skógarverðirnir hafa í æ minni
mæli getað veitt félögunum aðstoð. Það er
auðsætt, að eigi þau að geta annað eins stór-
um hluta skógræktarstarfsins og hingað til, verð
ur að veita þeim aukið aðhald og fyrirgreiðslu.
Að öðrum kosti er hætt við að störf þeirra
fari meira og minna úrskeiðis og þannig bæði
fjármunum og vinnu kastað á glæ.
f marsmánuði 1973 boðaði stjórn Skógrækt-
arfélags Islands stjórnarmenn skógræktarfé-
laga á Suðurlandi til fundar til að ræða við þá
um ýmis þau mál, er verða mættu til efling-
ar félagsstarfinu. Slíkir landshlutafundir eru
ekki nýir af nálinni, og hafa þeir verið haldn-
ir í öllum landshlutum að undanteknum ein-
um, Suðvesturlandi. Yfirleitt hafa þessir fundir
reynst gagnlegir t. d. með tilliti til sameigin-
legra áhugamála félaga og samræmingar á
störfum, því viðfangsefni eru lík, þótt félögin
búi við ólík fjárráð og aðstæður. í ráði er að
halda fleiri slíka fundi, eftir því sem ástæður
leyfa, og geta þeir að nokkru komið í stað
formannafunda þeirra, sem fyrirhugað er að
efna til annað hvert ár.
Norðmannaheimsókn
Á árinu 1973 var skipst á skógræktarfólki
milli Islands og Noregs. Að venju var til þess-
arar ferðar stofnað að tilhlutan norska Skóg-
ræktarfélagsins og Skógræktarfélags Islands.
Hafa slíkar ferðir verið farnar þriðja hvert ár,
allt frá árinu 1949, þannig að þetta var 9
skiptiferðin í röðinni.
Hingað komu 70 norðmenn og dvöldust
þeir á þrem stöðum í nágrenni Reykjavíkur,
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1975