Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 38
~«yi . .^r. "* ■»»* M. -* JUjf- - *»'
Tamarix ramosissima Ledeb. (e. saltcedar) var upphaflega flutt inn til Bandaríkjanna sem skrautrunni, en ftefur síSan sáS sér út viS árfarvegi. Mynd:
Steve Dewey, Utah State öniversity, www.forestryimages.org
''r--'-: y.r-
■ .
lífvera, þótt öðru hafi áður verið
haldið fram. í enn öðrum til-
vikum hefur (að því er virðist
vísvitandi) verið einþlínt á skað-
ieg áhrif innfluttrar tegundar í
vistkerfi, en horft fram hjá þeim
vistfræðilegu áhrifum sem hljóta
að teljast jákvæð. Þegar alls er
gætt, er óljóst hvort vegi þyngra á
metunum, vistfræðilegt gagn eða
ógagn af þeim framandi, ágengu
tegundum plantna sem versta
óorðið fer af.
lafnvægi og einingu raskað?
Þýski dýrafræðingurinn Ernst
Hackel (1834-1919) gaf fræði-
greininni vistfræði nafn sitt og
telst upphafsmaður hennar.46 í
fræðiriti sínu skilgreinir hann
vistfræði sem „fræðigrein sem
fjallar um samband lífvera við allt
umhverfi sitt", en ætlun hans var
að fá lesandann til þess að
skynja lífríkið sem alltumlykjandi,
lffrænt hagkerfi þar sem hver
lífvera leikur tiltekið hlutverk.
Hann hafnaði alfarið skynsemis-
hyggju Upplýsingaraldar en
aðhylltist þess í stað einhyggju
fMonism), sem er frumspekileg
kenning fremur en vísinda-
kenning.13 Einhyggjan gengur út
frá því að raunveruleikinn sé ein
órjúfanleg heild án nokkurra
sjálfstæðra þátta og að allt ráðist
af náttúruöflunum.
Hackel á einnig heiðurinn af
ýmsum lífseigum en vafasömum
kenningum tengdum líffræðilegri
kynþáttahyggju, af sömu rótum
runnar og fyrrnefnd einhyggja.
Þannig væri mannkynssagan
bundin lögmálum náttúrunnar og
örlög einstaklinga bundin á klafa
stærri hópa, kynþátta eða þjóðar-
brota. Hann lagði mikla áherslu á
að eðlisávísunin og frumstæðar
hvatir stýrðu framvindu sögunnar
en ekki skynsemi eða meðvitað
val. Gasman32 færir fyrir því rök að
Hackel hafi óbeint átt stóran þátt
f mótun hugmyndafræði nasis-
mans. „Völkische Bewegung",
hreyfing sem varð til eftir fyrri
heimsstyrjöld og sem talin er
undanfari nasismans, studdist
mjög við kenningar Hackels og
tengdi þær þjóðrembingslegri
dulhyggju. Á stefnuskrá hreyf-
ingarinnar var m.a. að losa
Þýskaland við allt og alla sem
væri „ónáttúrlegt" og framandi.13
Upphaf vistfræðinnar markar
samruna tveggja frumspekilegra
hugmynda sem báðar hafa reynst
lífseigar kennisetningar í náttúru-
vernd og vistfræði: annars vegar
hugmyndarinnar um „jafnvægi í
náttúrunni" og hins vegar um
36
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005