Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 39
..einingu (órofa heild) náttúr-
unnar''.13 Það er hins vegar fátt að
finna f niðurstöðum vist-
fræðirannsókna undanfarna öld
sem rennir stoðum undir hinar
lífseigu, frumspekilegu hug-
myndir Hackels um að náttúrleg,
..ósnortin" lffkerfi séu þétt, sam-
ofin, samþróuð kerfi sem leiti
samhljóms í fullkomnu jafnvægi.
104 Raunar er ómögulegt að sjá
neina augljósa „markáætlun" í
náttúrunni sem gæti bent til þess
að náttúran hafi verið skipulögð
með þau háleitu markmið að
leiðarljósi að stuðla að jafnvægi
og stöðugleika.
I>vert á móti ein-
kennist náttúran 09
öll saga hennar
fremur af eilífri
ringulreið 09 umróti.
Heildarhugmyndin um stöðug-
leika og jafnvægi náttúrunnar er
..ágætis ljóðlist en fremur klén
vísindi" eins og vistfræðingurinn
SagofP0 komst að orði. Vist-
fræðingurinn Michel Soulé 104
ritar:
Mugmyndin um að tegundir lifi í
samþœttum samfélögum erekkert
annað en goðsögn .... Stöðug
umbreyting á félagatali svonefndra
liffélaga er reglan og hin lifandi náttúra
er ekki íneinu jafnvœgi, a.m.k. ekki í
þeim mæli að það skipti máli fyrir
langvarandi viðhald tegunda sem í
henni er að finna".
Hann segir ennfremur:
yistfræðin hefurfallið á eigin bragði
með þvíað halda of lengi fram þeirri
úreltu kennisetningu að náttúrleg
tíffélög leiti jafnvægis. Nwti'maleg
vistfrœðileg hugsun færir fyrir því rök
að samsöfn lífvera hafi aldrei haft ísér
'eðlislæga hneigð til þess að leita
iafnvægis'. Þess vegna munu allar
tilraunir til þess að skilgreina og
framkalla upphaflegt, 'náttúrlegt'
ástand og tegundasamsetningu líffélags
eða vistkerfis bera beinin inni í vísinda-
legu eða rökrænu völundarhúsi."
Hjá því verður vart komist að
álykta að hinar lífseigu hug-
myndir Hackels dragi dám af
hugmyndum um manngervingu
náttúrunnar (e. anthropomorphism).
Vegna þess að stöðugleiki,
fyrirsjáanleiki, velferð, sam-
hljómur og eining eru álitnir
æskilegir þættir í mannlegum
samfélögum og hagkerfum, hljóti
framvindan í náttúrunni (s.s.
jarðsagan, þróunarsagan,
framvinda vistkerfa) að endur-
spegla það ástand sem maðurinn
álítur æskilegast í eigin þjóð-
félagsskipulagi og sem hann
keppist við að ná (þ.e. útópíu:
„hinn besta heim allra heima").
Algengar hugmyndir á okkar
dögum, af skyldum toga, eru t.d.
trúin á „náttúrlega yfirburði"
innlendra tegunda (sem eigi að
hafa „bestu mögulegu aðlögun");
„siðferðislegan fyrsta rétt"
innlendra tegunda (= frum-
byggjanna) og „verndun" eða
„endurheimt" vistkerfa með
„upprunalega" tegunda-
samsetningu að leiðarljósi.
Þessar hugmyndir eiga rætur
sínar að rekja til rómantíska
tímabilsins (ca. 1785-1835),
innblásnar af einhyggju Hackels
og hugmyndum Rousseau um
jafnvægi og einingu í náttúrunni,
ásamt tilfinningum og trúar-
legum kennisetningum sköp-
unarfræðinnar (e. creationism).
Ádeilu á rökvillur þessara
hugmynda eru gerð ítarleg skil af
bandaríska þróunarfræðingnum
Stephen Jay Gould:37 „Innlendar
tegundir eru þær tegundir sem hafa
fyrir tilviljun fundið sér leið á tiitekinn
stað (eða þróast þar), ekki endilega
beslu mögulegu tegundir fyrir þann
stað". Annað væri í raun andstætt
grundvallarlögmáli þróunar-
líffræðinnar sem boðar að til-
koma, tilvist og „heimahagar"
líffræðiiegra fyrirbæra (lífveru-
tegunda, vistkerfa, lífbelta) séu
afleiðing jarðsögulegra tilviljana,
en að þvf fari hins vegar fjarri að
þessi fyrirbæri hafi verið hönnuð
eða þeim stýrt af æðri máttar-
völdum, með fullkomna aðlögun
að leiðarljósi. Lffverur hafi, með
öðrum orðum, ekki endilega
tekið sér bólfestu á stöðum þar
sem eðliseiginieikar þeirra eða
hæfni til aðlögunar fái best notið
sín.
Ætihvönn lAngelica archangelica L.) íyfirgefnu túni á Hornströndum. Mynd: Arnlín Óladóttir.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
37