Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 46
„alvarleg" eða „mjög alvarleg"
jarðvegseyðing.73 Aðeins á fjórum
hundraðshlutum landsins er
engin jarðvegseyðing. í samhengi
við skilgreiningar IUCN, má
álykta að engin fyrirstaða sé að
umbreyta manngerðum vist-
kerfum á stærstum hluta lands-
ins í skóga innfluttra tegunda,
þótt núverandi stefna stjórnvalda
sé einungis að skógvæða 1%
landsins á næstu 40 árum.
Innfluttir váboðar og óeining í
fjölmenningarsamfélagi
Helsta ástæðan fyrir þvi að sumu
fólki hér á landi eða annars
staðar á Vesturlöndum stendur
stuggur af innfluttum tegundum
eru sögur sem borist hafa frá
öðrum löndum af skaðlegum
áhrifum ágengra, innfluttra
tegunda á lffríkið. Slík dæmi eru
einkum fengin frá eyjum í
Kyrrahafi þar sem lífríkið hefur
þróast um milljónir ára í ein-
angrun, án röskunaraf völdum
ísmassa og þar sem innlendu
tegundirnar hafa ekki þolað afrán
eða samkeppni frá innfluttum
tegundum á borð við rottur eða
geitur. Ekki er verjandi að yfir-
færa slíkar reynslusögur á ísland,
þar sem allar tegundir í flóru
landsins eru útbreiddar og
algengar í öðrum löndum við
norðanvert Atlantshaf og engin
tegund „einlend" á íslandi.
Helstu rök fyrir því að óttast
innrásir framandi plantna og
halda á lofti „þjóðernissinnaðri
grasafræði" sem stefnu í land-
nýtingarmálum virðast byggjast á
rangtúlkunum og röngum for-
sendum. Þvf er ekki óeðlilegt þótt
spurt sé hvort yfirleitt sé nokkur
ástæða til þess að óttast að
innfluttar tegundir trjáa eða
annarra jurta skaði lífríki Islands?
Þegar tillit er tekið til þess að
flóra íslands er fátæk af tegund-
um vegna einangrunar landsins,
vantar sennilega mikið upp á að
vistkerfi landsins séu fyllilega
starfhæf, miðað við núverandi
eða hlýnandi loftslag. Af þeim
sökum ættu nýbúar að vera
velkomin viðbót f flóru landsins.
Til staðar er umtalsverð vísinda-
leg þekking sem bendir ekki
aðeins til þess að ávinningur af
innfluttum plöntum geti verið
efnahagslegur, heldur einnig
vistfræðilegur.62'82 108 Dæmi um
neikvæð áhrif innfluttra plantna
tengjast flest fjárhagslegum
skaða, vegna kostnaðar við
illgresiseyðingu í akuryrkju.25 85
Flestar innfluttar tegundir hafa
unnið sér þegnrétt f nýjum heim-
kynnum án þess að hafa skapað
vistfræðileg vandamál og ekki er
vitað um dæmi þess að nokkurri
plöntutegund hafi verið útrýmt
vegna samkeppni við innflutta,
framandi tegund.10'42 108 Innfluttar
plöntutegundir hafa einkum
reynst affarasælar (eða „frekar,
aðsópsmiklar eða ágengar", eftir
þvf frá hvaða sjónarhóli á það er
Iitið) í umhverfi sem er raskað af
mannavöldum, þar sem þær
gegna þó fjölþættu hlutverki,
m.a. þvf að græða land, byggja
upp frjósemi jarðvegs, búa f
haginn fyrir innlendartegundir,
eða framleiða gagnvið og aðrar
endurnýjanlegar auðlindir sem
gagnast manninum.61,108
Þegar öllu er á botninn hvolft er
afstaðan til framandi jurta í
íslensku lffríki bundin tilfinninga-
legri afstöðu sem háð er straum-
um, stefnum og tísku, líkt og
afstaðan til pólitískra stefnumála
yfirleitt. í bókinni „í skjóli heim-
spekinnar"78 ritar Páll Skúlason
grein sem nefnist „Siðfræði og
skógrækt". f þeirri grein (bls. 26)
víkur Páll að því hvernig menn
geta deilt um mismunandi
útleggingu á skógræktarhugsjón-
inni og hvernig við eigum að
rækja skyldur okkar við hana. Þar
segir:
„Einhver kann að líta svo á að skóg-
rcektin eigi fyrst og fremst að vera land-
og gróðurvernd. Annar vill að skóg-
ræktin verði hugsuð til nytja fyrir
Sjálfsáð stajafum í uppgræddu rofabarii við Sóibrekkur á Reykjanesskaga. Mynd: Aðalsteinn
S igurgeirsson.
44
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005