Skógræktarritið - 15.10.2005, Side 60
11. mynd. Stafafurubelti suðaustan við húsið, sem sést í baksýn. Ltklega er þetta vaxið upp í rimlakössunum á 1. mynd.
mér. Læt þær standa þar f 2-3
sumur og pianta þeim síðan út
og hjálpa þeim með þessari
aðferð yfir erfiðasta hjallann.
Þá er annað atriði mikilvægt,
segir Sigurður, og það er að
undirbúa landið fyrir gróður-
setningu haustið áður en plantað
er. Ég hef þurft að rífa upp grjót,
þvf hér er afar grýttur jarðvegur -
holtið varla annað en grjót og
mosi. Síðan hef ég fyilt holuna
með mold sem ég hef grafið upp
annars staðar á holtinu því
annars fyllist holan af vatni og
tréð getur lent í því að standa í
klaka. Eftir gróðursetninguna ber
ég sfðan grjót að piöntunni 3
steina að hverri piöntu svo hún
losni ekki upp úr holklakanum á
vorin."
Hinn 22. júní 1984 tók ég margar
myndir af ungskóginum þarna, og
eru 4 þeirra birtar hér.
Hinn 24. ágúst 2005 kom ég loks
aftur í Grænagarð, en svo heitir
staðurinn. Sigurður hafði fyrir
löngu byggt heilt hús utan um
sumarhúsið, sem sést á 2. og 3.
mynd og þangað fluttu þau
Kristín fyrir mörgum árum. Það
er svo önnur saga, hvílfkt safn af
merkilegum myndum og gripum
prýða heimili þeirra. Enda kallar
Sigurður sig ekki lengur skipa-
smið, heldur er hann myndlista-
maður í símaskránni.
Skógurinn er óþekkjanlegur frá
því, sem var fyrir 21 ári. Húsið er
nú umvafið skógi. Sitkagrenið
ber auðvitað af, eins og víðast á
íslandi er raunin, en líka er þarna
mjög vöxtuleg stafafura og berg-
fura. Meira að segja er þarna
furðugott birki, t.d. ljómandi
fallegur ungur teigur af Emblu.
Hér birti ég 7 myndir úr þessari
heimsókn til samanburðar við
þær frá 1984.
Miðað við stað og ástand lands-
ins, þegar ræktun hófst, er þessi
skógur ein af furðunum í skóg-
rækt á íslandi.
58
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005